2. deild: Njarðvík í Lengjudeildina (Staðfest) - Þróttur vann og þrjú rauð á Ólafsfirði

Til hamingju Njarðvík!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttarar fagna gegn Reyni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sævar skoraði í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Til hamingju Njarðvík!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spiluð var heil umferð í 2. deild karla í dag en þá fór 18 umferðin fram.
Leikur Þróttar og Reynis Sandgerði var í beinni textalýsingu hér á Fotbolta.net
Lestu nánar um þann leik hérna.
Njarðvík er komið upp í Lengjudeildina en liðið vann 3-0 sigur á Völsungi á Rafholtsvellinum í dag. Liðið hefur verið frábært í sumar og er vel að þessu komið. Enn eru fjórar umferðir eftir af deildinni.
Á sama tíma mistókst Ægi að vinna KF fyrir norðan. Heimamenn í Fjallabyggð leiddu leikinn með tveimur mörkum í hálfleik en þau skoruðu nafnarnir Sævar Gylfason og Sævar Þór Fylkisson.
Ægir náði að koma til baka í síðari hálfleiknum en KF lék stóran hluta hans einum færri. Allt sauð upp úr í leiknum en bekkurinn hjá KF fékk tvö rauð í lokinn. Það voru þeir Halldór Guðmundsson og Sævar Þór Fylkisson. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli sem þýðir að Njarðvík er endanlega öruggt í einu af tveimur efstu sætunum.
Þróttur vann Reyni frá Sandgerði með þremur mörkum gegn einu og styrkir því stöðu sína í öðru sæti deildarinnar þar sem Völsungur og Ægir töpuðu stigum. Reynismenn fengu tvö rauð í leiknum.
Þá gerði neðsta lið deildarinnar, Magni, 3-3 jafntefli gegn Víkingi Ó. ÍR fór létt með KFA og vann 4-1 og þá vann Höttur/Huginn 2-1 sigur á Haukum.
Þróttur 3-1 Reynir S
1-0 Hinrik Harðarson ('12)
2-0 Hinrik Harðarson ('47)
3-0 Hinrik Harðarson ('73, víti)
3-1 Magnús Magnússon ('81)
Rautt spjald: Zoran Plazonic, Reynir S. ('55)
Rautt spjald: Birkir Freyr Sigurðsson, Reynir S. ('72)
KF 2-2 Ægir
1-0 Sævar Gylfason ('5)
2-0 Sævar Þór Fylkisson ('21)
2-1 ('62)
2-2 ('68)
Rautt spjald: Daniel Kristiansen ('68)
Rauð spjöld á bekk KF: Halldór Guðmundsson og Sævar Þór Fylkisson
Njarðvík 3-0 Völsungur
Mörk Njarðvíkur: Ari Már Andrésson, Einar Orri Einarsson og Samúel Skjöldur Ingibjargarson
Höttur/Huginn 2-1 Haukar
1-0 Tete ('22)
1-1 Ólafur Darri Sigurjónsson ('26)
2-1 Rafael Victor ('93)
ÍR 4-1 KFA
0-1 ('17)
1-1 ('58)
2-1 ('73)
3-1 ('75)
4-1 ('85)
Magni 3-3 Víkingur Ólafsvík
1-0 Guðni Sigþórsson ('1)
1-1 ('19)
1-2 ('42)
2-2 Kristinn Þór Rósbergsson ('61)
2-3 ('79)
3-3 Alexander Ívan Bjarnason ('81)

Þróttarar fagna gegn Reyni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sævar skoraði í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


