Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24391 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR01.11.2025, 17:04

Nenad og Arnar áfram með Ægi (Staðfest)

Nenad Zivanovic, þjálfari Ægis, og Arnar Logi Sveinsson, aðstoðarþjálfari, hafa skrifað undir nýjan eins árs samning við Ægi ásamt Ivaylo Yanachkov, markmannsþjálfara liðsins.

FRÉTTIR01.11.2025, 12:04

Lundemo sagt upp hjá Val (Staðfest)

Valur nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi Marius Lundemo og hefur hann því yfirgefið félagið. Lundemo er 31 árs gamall Norðmaður sem gekk til liðs við félagið fyrir tímabilið en hann vann fjölda titla með Rosenborg á sínum tíma, þá spilaði hann einnig með Lilleström.

FRÉTTIR01.11.2025, 11:00

Vieira rekinn frá Genoa (Staðfest)

Patrick Vieira hefur verið rekinn frá ítalska liðinu Genoa eftir slæmt gengi liðsins á tímabilinu. Liðið er án sigurs í fyrstu níu deildarleikjum og hefur tapað sex. Liðið er á botni deildarinnar með þrjú stig.

FRÉTTIR31.10.2025, 15:35

Andri Fannar spilar ekki áfram með KA (Staðfest)

KA tilkynnti í dag að Andri Fannar Stefánsson yrði ekki áfram leikmaður félagsins. Honum er þakkað kærlega fyrir hans framlag sem leikmaður liðsins. Andri Fannar er þó ekki að kveðja félagið því hann er mjög fær yngri flokka þjálfari og heldur áfram að starfa fyrir félagið. Hann er afreksþjálfari 13-16 ára drengja og þjálfar 5. flokk drengja.

FRÉTTIR31.10.2025, 13:57

Gísli Eyjólfs í ÍA (Staðfest)

ÍA hefur gengið frá samningi við Gísla Eyjólfsson sem mun leika með félaginu næstu þrjú árin. Gísli er 31 árs og kemur til ÍA á frjálsri sölu frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Halmstad FK. Hann hefur leikið 159 leiki í efstu deild á Íslandi og skorað í þeim 31 mark, auk þess sem hann hefur spilað 30 Evrópuleiki og 4 A-landsleiki fyrir Ísland. Gísli var lykilmaður í Íslandsmeistaraliði Breiðabliks árið 2022 og hefur síðan þá leikið sem atvinnumaður í Svíþjóð. Fram kemur í tilkynningu ÍA að Gísli og fjölskylda hans munu setjast að á Akranesi. „Við hjá ÍA bjóðum þau hjartanlega velkomin í Skagafjölskylduna. Þetta er frábær innspýting í félagið og mikilvæg viðbót við leikmannahópinn," segir í tilkynningu ÍA en liðið náði að halda sæti sínu í Bestu deildinni þrátt fyrir að hafa verið í erfiðri stöðu þegar nokkrar vikur voru eftir af tímabilinu. Lárus Orri Sigurðsson náði að rétta skútuna við og verður áfam þjálfari liðsins.

FRÉTTIR31.10.2025, 13:52

Óskar Smári orðinn þjálfari Stjörnunnar (Staðfest)

Óskar Smári Haraldsson hefur verið kynntur sem nýr þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni. Óskar lét af störfum eftir að hafa náð góðum árangri sem þjálfari kvennaliðs Fram. Stjarnan hafnaði í fjórða sæti Bestu deildarinnar í sumar.

FRÉTTIR30.10.2025, 19:00

Spalletti ráðinn stjóri Juventus (Staðfest)

Luciano Spalletti hefur verið ráðinn stjóri Juventus. Hann skrifaði undir samning út tímabilið. Hann tekur við af Igor Tudor sem var látinn taka pokann sinn eftir slæmt gengi í upphafi tímabilsins. Liðið spilaði átta leiki í röð án þess að vinna en liðið lagði Udinese af velli í gær. Liðið er í 7. sæti ítölsku deildarinnar eftir níu umferðir.

FRÉTTIR30.10.2025, 16:47

Matthias Præst yfirgefur KR (Staðfest)

Danski miðjumaðurinn Matthias Præst hefur yfirgefið KR eftir eitt ár hjá félaginu. Hann var samningsbundinn félaginu til 2027. Hann og KR hafa gert á mili sín starfslokasamning en Matthias er að flytja aftur heim til Danmerku. Hann kom frá Fylki efir tímabilið 2024, en það var hans fyrsta tímabil á Íslandi.

FRÉTTIR30.10.2025, 14:00

Milos fékk ekki serbneska landsliðið - Paunovic ráðinn (Staðfest)

Serbneska knattspyrnusambandið hefur tilkynnt Veljko Paunovic sem nýjan þjálfara karlalandsliðsins.

Paunovic var nýverið rekinn frá spænska félaginu Real Oviedo í upphafi mánaðar. Hann þekkir vel til innan knattspyrnusambands Serbíu en hann hefur þjálfað yngri landslið Serbíu.

Hann stýrði U21 landsliði Serbíu fyrir tíu árum en þar áður var hann með U19 og U18 ára liðin. Sem leikmaður er Paunovic eflaust þekktastur fyrir dvöl sína hjá Atlético Madrid.

Serbinn Milos Milojevic, fyrrum þjálfari Víkings R. og Breiðabliks, var meðal þeirra sem eru orðaðir voru við starfið. En Milos er þjálfari Sharjah FC í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

FRÉTTIR30.10.2025, 10:20

Marko Vardic farinn frá ÍA (Staðfest)

Slóveninn Marko Vardic hefur yfirgefið ÍA eftir að samningur hans við félagið rann út. Hann hefur verið einn af lykilmönnum liðsins síðustu tvö ár, en þar áður lék hann með Grindavík hérlendis.

Vardic er þrítugur miðjumaður sem getur einnig leikið í miðverði. Hann spilaði 25 leiki í Bestu deildinni á nýafstöðnu tímabili með ÍA, sem endaði í áttunda sæti deildarinnar.

Félagið tilkynnti tíðindin í morgunsárið og má sjá tilkynninguna hér fyrir neðan.

FRÉTTIR29.10.2025, 16:17

Albert Hafsteins yfirgefur ÍA (Staðfest)

Albert Hafsteinsson hefur yfirgefið ÍA. Þegar hann kom aftur til félagsins frá Fram sumarið 2023 gerði hann upphaflega samning út tímabilið 2026 en Skagamenn tilkynna nú að leiðir skilja. Albert er 29 ára miðjumaður sem kom við sögu í 17 leikjum í Bestu deildinni í sumar en var að mestu notaður sem varamaður.

FRÉTTIR28.10.2025, 16:01

Birnir Snær í Stjörnuna (Staðfest)

Birnir Snær Ingason er genginn í raðir Stjörnunnar en hann kemur til félagsins frá KA. Hann skrifar undir þriggja ára samning. Fótbolti.net sagði frá því fyrir rúmri viku síðan að mjög miklar líkur væru á því að Birnir færi í Garðabæinn og varð það svo raunin. Stjarnan tryggði sér Evrópusæti á sunnudag, liðið endaði Bestu deildina í 3. sæti. Birnir er 28 ára kantmaður sem kom öflugur inn í lið KA og hjálpaði liðinu úr erfiðri stöðu. Hann kom til KA frá sænska félaginu Halmstad í júlí og samdi út tímabilið. Hann hefur einnig leikið með Fjölni, Val, HK og Víkingi. Tímabilið 2023 var Birnir besti leikmaður Íslandsmótsins.

FRÉTTIR28.10.2025, 15:34

Óskar Smári hættur með Fram (Staðfest)

Óskar Smári Haraldsson er hættur sem þjálfari kvennaliðs Fram. Hann staðfestir þetta í samtali við Fótbolta.net. Óskar Smári hefur náð stórkostlegum árangri með Fram síðustu árin en þegar hann tók við liðinu þá var það í 2. deild.

FRÉTTIR28.10.2025, 13:08

Landsleiknum frestað (Staðfest)

Landsleik Íslands og Norður-Írlands í umspili Þjóðadeildarinnar sem átti að fara fram í dag hefur verið frestað.

Í tilkynningu frá KSÍ kemur fram að UEFA hafi tekið ákvörðunina í samráði við KSÍ og knattspyrnusamband Norður-Írlands.

Leikurinn átti að hefjast klukkan 18:00 á Laugardalsvelli í kvöld en vegna mikillar snjókomu var metið sem svo að völlurinn væri óleikhæfur.

FRÉTTIR27.10.2025, 23:13

Brendan Rodgers segir af sér (Staðfest)

Brendan Rodgers sagði upp sem stjóri Celtic í kvöld. Martin O'Neill verður bráðabirgðastjóri liðsins. Tímabilið hefur verið erfitt fyrir Celtic en liðið er átta stigum á eftir toppliði Hearts eftir níu umferðir. Tómas Bent Magnússon er leikmaður Hearts. Rodgers lætur af störfum eftir 3-1 tap gegn Hearts um helgina.

FRÉTTIR27.10.2025, 17:28

Heimir kynntur hjá Fylki (Staðfest)

Heimir Guðjónsson hefur verið ráðinn þjálfari Fylkis í Lengjudeildinni. Hann tekur við liðinu af Arnari Grétarssyni. Sumarið var erfitt fyrir Fylki en liðið hafnað í 8. sæti Lengjudeildarinnar eftir að hafa fallið úr Bestu deildinni í fyrra.

FRÉTTIR27.10.2025, 15:59

Túfa, Haukur Páll og Kjartan Sturlu hætta hjá Val (Staðfest)

Valur hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem staðfest er að Túfa, Srdjan Tufegdzic, sé hættur sem þjálfari Vals. Haukur Páll Sigurðsson, sem var aðstoðarmaður hans, og markvarðaþjálfarinn Kjartan Sturluson, yfirgefa einnig félagið. Túfa vildi halda áfram en Valur ákvað að fara í þjálfarabreytingar og samkvæmt heimildum er verið að ganga frá því að Hermann Hreiðarsson taki við. Í tilkynningu Vals segir að unnið sé að því að setja saman þjálfarateymi fyrir næsta tímabil.

FRÉTTIR27.10.2025, 14:17

Ahmad Faqa yfirgefur FH (Staðfest)

FH tilkynnti í dag að Ahmad Faqa væri farinn frá félaginu en lánssamningi hans hjá Fimleikafélaginu er lokið og snýr hann nú aftur til sænska félagsins AIK. FH þakkar honum fyrir, segir lánsdvölina vel heppnaða og Faqa óskað góðs gengis. Faqa, sem er 22 ára miðvörður, kom á láni frá AIK fyrir tímabilið og kom við sögu í öllum leikjum nema einum á tímabilinu og byrjaði langflesta leikina.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.