Fotbolti.net
28.10.25 - 13:08
Kári Snorrason

Landsleiknum frestað (Staðfest)

Snæviþakinn Laugardalsvöllur.

Snæviþakinn Laugardalsvöllur.

Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip

Landsleik Íslands og Norður-Írlands í umspili Þjóðadeildarinnar sem átti að fara fram í dag hefur verið frestað.

Í tilkynningu frá KSÍ kemur fram að UEFA hafi tekið ákvörðunina í samráði við KSÍ og knattspyrnusamband Norður-Írlands.

Leikurinn átti að hefjast klukkan 18:00 á Laugardalsvelli í kvöld en vegna mikillar snjókomu var metið sem svo að völlurinn væri óleikhæfur. 

Hyggjast færa landsleikinn inn í Kórinn - „Ef ekki þá er morgundagurinn kannaður“
TENGT EFNI

Hyggjast færa landsleikinn inn í Kórinn - „Ef ekki þá er morgundagurinn kannaður“

Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, sagði í samtali við Fótbolta.net í morgun að hann ásamt fulltrúum KSÍ, UEFA og knattspyrnusambands Norður-Írlands funduðu í Kórnum nýverið um mögulega breytingu á leikstað. Hugsanlega ætti að færa leikinn inn í Kórinn, en niðurstaða fundarins varð sú að fresta leiknum.

Veðurspá morgundagsins er engu skárri ef litið er til úrkomu. Í tilkynningu KSÍ segir að verið sé að skoða stöðuna um framhaldið og má vænta tilkynningu frá sambandinu um leið og niðurstaða um framhaldið liggur fyrir.

Tilkynning KSÍ:

Ákveðið hefur verið að leikur A landsliðs kvenna við Norður-Írland, sem fara átti fram á Laugardalsvelli í dag, þriðjudag kl. 18:00, verði ekki leikinn í dag. Þessi ákvörðun er tekin af Knattspyrnusambandi Evrópu (UEFA), í samráði við KSÍ og Norður-írska knattspyrnusambandið (IFA).

Verið er að skoða stöðuna og framhaldið og mun KSÍ birta tilkynningu þess efnis á sínum miðlum um leið og niðurstaða liggur fyrir.

Fundað var um möguleikann á því að færa leikinn inn í Kórinn.

Fundað var um möguleikann á því að færa leikinn inn í Kórinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.