Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 01. febrúar 2023 11:14
Auglýsingar
Kynningarfundur um bandaríska háskólaboltann á morgun
SEUSA x Harvard.
SEUSA x Harvard.
Mynd: SEUSA x Harvard
Á morgun, fimmtudaginn 2. febrúar, býðst áhugasömum einstakt tækifæri til að fræðast um háskólaboltann í Bandaríkjunum frá þjálfarateymi eins sögufrægasta og virtasta Háskóla í Bandaríkjunum!

Viðburðurinn á Facebook

Soccer & Education USA (SEUSA) hefur undanfarin átta ár aðstoðað um það bil 450 leikmenn við styrkveitingu við háskóla víðsvegar um Bandaríkin

Árlega hefur fyrirtækið staðið fyrir svokölluðum Showcase leikjum þar sem þjálfarar viðsvegar frá Bandaríkjunum mæta og fylgjast með leikmönnum sem taka þátt

Þjálfarateymi kvennaliðs Harvard mun mæta á Showcase leikina sem SEUSA stendur fyrir næstu helgi (4-5.febrúar) og taka þátt í kynningarfundi um háskólaboltann í Bandaríkjunum.

Fundurinn verður haldinn annað kvöld klukkan 20:30 í Kaplakrika (Veislusalur - Sjónarhóll).

Allir áhugasamir velkomnir!

Svo má nefna að showcase leikirnir verða núna á laugardaginn og sunnudaginn (4&5 febrúar) í Miðgarði Garðabæ. Fyrstu leikirnir byrja 14:00 og allir velkomnir að mæta og fylgjast með.
Athugasemdir
banner
banner
banner