Fotbolti.net
13.09.26 - 23:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kári Sigfússon: Vantaði Prettyboitjokkó til að taka Hiti á klúbbnum

Auglýsing
Kári Sigfússon: Vantaði Prettyboitjokkó til að taka Hiti á klúbbnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Mér líður virkilega vel. Þetta var frábær sigur, maður var orðinn smá stressaður á tíma en þetta hafðist sem er geðveikt," sagði Kári Sigfússon, leikmaður Fylkis, eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitum um sæti í Bestu deildinni eftir sigur í einvíginu gegn HK.
Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 2 HK
Fylkir komst yfir en HK svaraði með tveimur mörkum.

„Ég veit ekki hvað gerist HK er bara gott lið. Þeir áttu inni góðan tuttugu mínútna kafla og voru góðir og settu tvö á okkur. Frammistaðan var góð, hún skilaði okkur á Laugardalsvöll. Við vorum að spila á móti liði sem var frábært í sumar. Við unnum þá í Kórnum og gerum jafntefli hér," sagði Kári.

Það var mikill hiti í leiknum en þrjú rauð spjöld fóru á loft í framlengingunni. Kári sló á létta strengi þegar hann var spurður út í hasarinn.

„Það var alvöru hiti í dag. Það vantaði Prettyboitjokkó í hálfleik til að taka Hiti á klúbbnum. Þetta var bara geðveikt," sagði Kári.

Kári gekk til liðs við Fylki frá Keflavík fyrir tímabilið. Hann hefur spilað þennan úrslitaleik síðustu tvö ár og innsiglaði 4-0 sigur Keflavíkur á HK í fyrra. Fylkir mætir Þrótti á Laugardalsvelli um næstu helgi.

„Að sjálfsögðu er ég gíraður. Búinn að fara þarna tvisvar áður og tapa einu sinni og það mun aldrei gerast aftur," sagði Kári léttur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.