13.09.26 - 23:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fannst fullmikið falla með Fylki - „Erfitt að vera með skýran haus"
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta verður ekki sárara en þetta," sagði Arnþór Ari Atlason, fyrirliði HK, eftir að liðið féll úr leik í Lengjudeildarumspilinu eftir tap í einvíginu gegn Fylki.
„Það er erfitt að vera með skýran haus stuttu eftir þetta. Ég held að ég sé að meta þetta rétt að mér fannst við betra liðið í einvíginu. Það var skellur að tapa í Kórnum þar sem við vorum betri allan leikinn. Gerum gríðarlega vel hérna, lendum undir en komust 2-1 yfir og erum líklegri til að skora þriðja markið í venjulegum leiktíma."

Það gekk mikið á í leiknum en Dominik Radic fékk rautt spjald og tvö rauð spjöld í viðbót fóru á loft. Þá vildi HK fá vítaspyrnu þegar Jóhann Þór Arnarsson var rifinn niður í teignum.
„Mér fannst klárlega brotið á Dominik þegar þeir jafna í 2-2. Þeir dæma ekki og í staðin skora þeir og Dominik fær rautt spjald, ég sá reyndar ekki hvað gerðist. Þarna var þetta erfitt," sagði Arnþór.
„Mér fannst vera rangstaða í fyrsta markinu. Svo vill maður heldur ekki rífa kjaft við dómarann endalaust að það sé honum að kenna. Við þurfum að gera betur líka varnarlega. Mér fannst falla fullmikið með þeim. Það er mjög vond tilfinning innra með mér núna."
„Það er klárt víti þegar það eru fimm mínútur eftir. Þetta er mjög svekkjandi en mér finnst mjög leiðinlegt að vera kvarta undan dómurunum. Við þurfum að gera betur. Við vorum með nýtt þjálfarateymi og frekar nýjan hóp en förum þetta langt. Erum lengi að slípa hópinn saman bæði vegna meiðsla og með nýjan hóp. Mér finnst við eiga skilið að vera á Laugardalsvelli."