Fotbolti.net
13.09.26 - 10:55
Brynjar Ingi Erluson

Fyrsti þjálfarinn látinn taka pokann sinn

Fyrsti þjálfarinn látinn taka pokann sinn
Canon

Mynd: EPA

Borussia Mönchengladbach hefur sagt Eugen Polanski upp störfum eftir slæma byrjun á tímabilinu. Hann er þar með fyrsti þjálfarinn sem er látinn taka pokann sinn í þýsku deildinni á þessari leiktíð
Þessar fregnir af Polanski koma eftir 5-0 skell gegn Freiburg í gær, en Gladbach hefur tapað öllum þremur deildarleikjum sínum á tímabilinu.

Polanski tók við liðinu til bráðabirgða fyrir ári þegar Gerardo Seoane var látinn fara og fékk síðan starfið til frambúðar eftir góðan árangur.

„Þrátt fyrir gott undirbúningstímabil og jákvæð merki hefur liðinu ekki tekist að ná þeim úrslitum sem við vonuðumst eftir í deildinni. Frammistaðan í síðustu leikjum varð til þess að við ákváðum að láta hann fara þegar í stað,“ sagði Rouven Schroder, yfirmaður íþróttamála hjá Gladbach.

Gladbach tapaði 3-0 fyrir Leipzig í fyrstu umferð og síðan óvænt 4-3 fyrir nýliðum Elversberg. Stórtapið gegn Freiburg fyllti svo mælinn.

Jan-Moritz Lichte stýrir liðinu á meðan félagið leitar að nýjum þjálfara.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.