Það gengur lítið upp hjá LSK Lóds og leikmönnum þeirra í pólsku úrvalsdeildinni um þessar mundir. Maciej Dabrowski, varnarmaður liðsins, nefbraut sjálfan sig í 1-1 jafntefli gegn Arka Gdynia.
Dabrowski þurfti að fara af velli eftir aðeins sex mínútur. Það gerðist eftir að hann reyndi að sparka í boltann, reyndi einhvers konar bakfallsspyrnu, með þeim afleiðingum að hann setti hné sitt í nefið á sér.
Hann gat ekki haldið áfram og kemur fram í pólskum fjölmiðlum að hann hafi nefbrotið sig.
Leikurinn endaði 1-1 og jafnaði LSK Lóds í uppbótartíma. Liðið er þrátt fyrir það áfram í botnsæti pólsku úrvalsdeildarinnar.
Sjón er sögu ríkari. Hér að neðan má sjá það þegar Dabrowski nefbraut sig.
Złamać sobie samemu nos kolanem. Tylko w ekstraklasie.#ARKŁKS pic.twitter.com/OZ5Tkwzzkk
— Wojciech Łazarek (@Napciu) March 1, 2020
Athugasemdir