Fotbolti.net
01.07.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

VEISLAN BYRJAR!!!

Þrátt fyrir að félagsskiptaglugginn í Evrópu hafi verið opinn allan júnímánuð er það ekki fyrr en í dag sem búast má við að fjörið í leikmannaskiptum hefjist af alvöru. Ástæðuna má reka til nokkurra hluta. Spænsku knattspyrnunni var að ljúka um helgina er bikarúrslitaleikurinn fór fram, Álfukeppni FIFA var að ljúka, mikið af leikmönnum sem eru að losna á frjálsri sölu losna ekki fyrr en þessi mánaðarmót og síðast en ekki síst, líklega stærsta ástæðan, reikningsári flestra félaganna lýkur 30. maí og það er ekki gott upp á bókhald að selja fyrr en í byrjun næsta reikningsárs. En nú frá og með deginum í dag má búast við miklu fjöri í leikmannaviðskiptum og það stærsta sem er á döfinni er án efa kaup Real Madrid á David Beckham sem gengið verður frá á morgun. En veislan er að byrja og við hér á Fótbolti.net verðum duglegir í að fræða ykkur lesendur um það sem gerist, munið samt, kaup eru ekki staðfest nema orðið (STAÐFEST) sjáist í sviga fyrir aftan fyrirsögnina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.