01.07.03 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
David Bellion til Man Utd. (STAÐFEST)
Franski vængmaðurinn David Bellion hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Manchester United. Samningur hans við Sunderland rann út í gær og kostar hann því ekki krónu fyrir Englandsmeistarana. "Ég er mjög spenntur fyrir því að fara á Old Trafford. Þetta er eitt af þeim liðum sem manni dreymir í æsku um að fá að spila með."
"Ég er þegar farinn að undirbúa tímabilið framundan og er til í að leggja mig 100% fram fyrir félagið." sagði Bellion, 20 ára, en mikil ánægja er einnig hjá Sir Alex Ferguson. "Hann er ungur og mjög efnilegur leikmaður sem passar vel inn í framtíðaráætlanir okkar."
David Bellion hefur sýnt mikil tilþrif með Sunderland en Ferguson reyndi að kaupa hann í fyrra en tilboði hans var hafnað.
David Bellion hefur sýnt mikil tilþrif með Sunderland en Ferguson reyndi að kaupa hann í fyrra en tilboði hans var hafnað.
