01.07.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
De Lucas til Alavés. (Staðfest)
Enrique De Lucas spænski miðjumaðurinn knái er farinn aftur til Deportivo Alavés en hann var hjá Chelsea á láni nú í vetur. De Lucas losnaði undan samningi hjá Espanyol síðastliðið sumar og fór til Alavés sem lánaði hann til Chelsea í eitt tímabil. De Lucas mun því væntanlega leika með Alavés í Spænsku 2.deildinni en Alavés féll í vor úr La Liga.
