Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. júlí 2020 20:32
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Matti Villa spilaði gegn gömlu félögunum
Mynd: Valerenga
Rosenborg 1 - 1 Vålerenga
1-0 Marius Lundemo ('20)
1-1 Ivan Nasberg ('79)

Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn í fremstu víglínu er Vålerenga gerði jafntefli við Rosenborg í norska boltanum í kvöld.

Matthías spilaði fyrir Rosenborg í fjögur ár áður en hann skipti til Vålerenga fyrir síðustu leiktíð.

Honum tókst ekki að skora gegn sínum gömlu félögum í jöfnum leik sem lauk 1-1.

Matti og félagar eru komnir með átta stig eftir fimm umferðir. Rosenborg er aðeins með fimm stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner