Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 01. júlí 2022 15:00
Elvar Geir Magnússon
Ansu Fati ákveðinn í að skína skært
Ansu Fati er spennandi leikmaður.
Ansu Fati er spennandi leikmaður.
Mynd: EPA
Barcelona hefur undirbúningstímabil sitt í komandi viku en Ansu Fati er farinn á fulla ferð í að gera sig kláran.

Fati er ákveðinn í að eiga gott tímabil en hann var frá stærstan hluta síðasta tímabils vegna meiðsla.

Þessi nítján ára spænski landsliðsmaður hefur verið að glíma við hnémeiðsli og hefur verið sárt saknað hjá Barcelona.

Í gær birti hann myndband af sér við æfingar með vinum sínum og sýndi þar tækni sína og gæði.


Athugasemdir
banner
banner
banner