Fotbolti.net
20.09.26 - 19:20
Sverrir Örn Einarsson

Haraldur Freyr um mótafyrirkomulagið: Ekki mikill stuðningsmaður

Auglýsing
Haraldur Freyr Guðmundsson+

Haraldur Freyr Guðmundsson+

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur stýrði lærissveinum sínunm til 2-2 jafnteflis gegn Fram á HS Orkuvellinum í Keflavík er liðin mættust í efri hluta Bestu deildarinnar í dag í hörkuleik. Haraldur var til viðtals við Fótbolta.net að leik loknum.
„Mér fannst fyrri hálfleikurinn svona frekar rólegur og lítið að gerast í honum en seinni hálfleikurinn allt annar og mikil skemmtun. Mikið fram og til baka, færi á báða bóga og hefði sigurinn auðveldlega getað dottið hvorum megin.“

Keflavík hefur að litlu að keppa öðru en stolti og mögulega ögn bættri stöðu í töflunni. Hvernig er að mótivera menn í þessa leiki þegar jafn lítið er í raun undir?

„Það er ekkert vandamál. Við höfum sett okkur það markmið að ná í eins mörg stig og við getum og fjórða sætið eða allavega fimmta sætið. Það er ennþá markmiðið en nú er langt í næsta leik eða þrjár vikur svo við förum og hvílum okkur aðeins áður en við förum að undirbúa okkur undir lokaátökin.“

Þessar þrjár vikur eru tilkomnar vegna landsleikjahlés en næsti leikur Keflavíkur er á dagskrá þann 11.október þegar Keflavík fer í heimsókn til Breiðabliks. Hvernig leggur Haraldur þennan tíma upp?

„Við tökum bara viku í frí svo komum við aftur saman og æfum og höfum svolítið gaman og tökum svo viku í undirbúning.“

Fyrirkomulag Bestu deildarinnar er einu sinni sem oftar umræðuefni á þessum árstíma. Hver er skoðun Haraldar á því?

„Ég er ekki mikill stuðningsmaður. Ég vil frekar hafa fjórtán lið og tvöfalda umferð. Það eru þá 26 leikir og það væri þá óskandi að það væri hægt að klára mótið fyrir þetta landsleikjahlé. “

Sagði Haraldur en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.