Hárprúði þjálfarinn hættir með Ekvador eftir tapið

Hefur stýrt Ekvador í tvö ár.

Mynd: EPA

Tilkynnti um brotthvarf sitt beint eftir leik.

Mynd: EPA

Hefur stýrt Ekvador í tvö ár.

Mynd: EPA
Sebastian Beccacece mun ekki halda áfram sem landsliðsþjálfari Ekvadors eftir að liðið féll úr leik gegn gestgjöfum Mexíkó í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í nótt.
Argentínumaðurinn staðfesti ákvörðunina við fjölmiðla eftir leik. Samningur hans rann út að heimsmeistaramótinu loknu og sagði hann ljóst að tími hans með landsliðinu væri á enda.
Argentínumaðurinn staðfesti ákvörðunina við fjölmiðla eftir leik. Samningur hans rann út að heimsmeistaramótinu loknu og sagði hann ljóst að tími hans með landsliðinu væri á enda.

TENGT EFNI
Maður dagsins á HM - Argentínski spaðinn sem stýrir gullkynslóðinni
Beccacece sagði markmiðið hafa verið að ná besta árangri í sögu Ekvadors á heimsmeistaramóti. Það tókst ekki, en besti árangur þjóðarinnar er sæti í 16-liða úrslitum á HM í Þýskalandi 2006.
Hinn hárprúði Beccacecce hefur verið líflegur í boðvanginum á heimsmeistaramótinu og klifraði hann upp í stúku til að fagna með fjölskyldu sinni þegar Ekvador komst yfir í óvæntum sigri á Þýskalandi í lokaumferð riðlakeppninnar.