Fotbolti.net
21.07.26 - 11:00
Ívar Björgvinsson

Freyr varar Víkinga við: „Tekur upp á óútreiknanlegum hlutum"

Freyr er nýtekinn við sem þjálfari Rosenborg.

Freyr er nýtekinn við sem þjálfari Rosenborg.

Canon

Mynd: Rosenborg

Í kvöld tekur Víkingur Reykjavík á móti ísraelsku meisturunum, Hapoel Be'er Sheva, í 2. umferð í undankeppni Meistaradeildarinnar. Það var í 1. umferð undankeppninnar sem liðið sigraði ungversku meistarana frá Györ en það var í fyrsta sinn í sögunni sem íslenskt félagslið vinnur ungverskt félagslið í knattspyrnu. Aftur byrja Víkingar á heimaleik en síðari leikurinn fer ekki fram í Ísrael af sökum ástandsins þar í landi. Með sigri verður Víkingur fyrsta íslenska liðið í sögunni til þess að komast í 3. umferð í undankeppni Meistaradeildarinnar en liðið hefur aldrei áður komist 2. umferðina fyrr en núna í ár.

Hapoel er töluvert stærra lið heldur en Víkingur en leikmannahópur þeirra er metinn á um 25 milljónir evra, sem samsvarar um 3.6 milljörðum íslenskra króna. Leikmannahópur Víkings er metinn á rétt tæpar 5 milljónir evra eða um 716 milljónir. Hapoel sigraði deildina í fyrra eftir átta ára bið en liðið var mjög sterkt á þeim árum.

Stjörnuleikmaður liðsins er miðjumaðurinn Kings Kangwa, Sambískur landsliðsmaður sem er verðmetinn á um 3.80 milljónir evra. Kings er 27 ára gamall og hefur spilað 46 landsleiki fyrir Sambíu og hefur skorað í þeim sjö mörk. Kings hefur verið leikmaður Hapoel síðan 2024 en áður lék hann í heimalandinu, rússnesku B-deildinni, Rauðu Stjörnunni og síðast með Kortrijk um stutt skeið, þar sem enginn annar en Freyr Alexandersson var þjálfari liðsins. Á síðustu leiktíð skoraði hann 12 mörk og lagði upp 11 í 40 leikjum ásamt því að hafa verið valinn besti leikmaður ísraelsku deildarinnar.

Freyr Alexandersson ræddi við Fótbolta.net um hvernig leikmaður Kings væri: „Kings Kangwa er listamaður með boltann. Tæknilega, mjög sterkur. Jafnvígur á baða fætur, stórkostlegur skotmaður. KK er með lágan þyngdarpunkt og erfitt að vinna af honum boltann. Víkingar geta búist við leikmanni sem getur tekið upp á óútreiknanlegum hlutum. Leikmaður sem mun skjóta ef hann sér markið.''

Fréttin er hluti af pistli sem birtist 20. júlí á áskriftarvef Fótbolta.net. Smelltu á hlekkinn að neðan til þess að skrá þig í áskrift og lesa pistilinn í heild sinni.

Víkingar geta skrifað söguna - Allt sem þú þarft að vita um andstæðinginn og framhaldið
TENGT EFNI

Víkingar geta skrifað söguna - Allt sem þú þarft að vita um andstæðinginn og framhaldið

Kings Kangwa mun skjóta ef hann sér markið.

Kings Kangwa mun skjóta ef hann sér markið.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.