Fotbolti.net
01.07.26 - 17:42
Ívan Guðjón Baldursson

Pereira rekinn tveimur mínútum fyrir frestinn (Staðfest)

Pereira rekinn tveimur mínútum fyrir frestinn (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Vítor Pereira hefur afar óvænt verið rekinn úr þjálfarastólnum hjá Nottingham Forest þrátt fyrir að hafa gert flotta hluti við stjórnvöl liðsins á síðustu leiktíð.
Enn ein stjóraskiptin í vændum hjá Forest - Glasner sagður taka við
TENGT EFNI

Enn ein stjóraskiptin í vændum hjá Forest - Glasner sagður taka við

Pereira var ráðinn til Forest í febrúar og náði liðið frábærum árangri undir hans stjórn. Hann bjargaði liðinu frá falli og komst alla leið í undanúrslit Evrópudeildarinnar.

Í ráðningarsamningnum var sérstakt ákvæði sem gaf félaginu rétt til að binda enda á samning þjálfarans án mikillar endurgreiðslu svo lengi sem það yrði gert fyrir miðnætti 30. júní.

Samkvæmt Ben Jacobs, fréttamanni hjá talkSPORT og GiveMeSport, var Pereira rekinn klukkan 23:58 í gærkvöldi, aðeins tveimur mínútum fyrir frestinn á fyrrnefndu ákvæði.

Pereira hefur staðfest brottreksturinn. Hann segist vera mjög hissa og að engin teikn hafi verið á lofti um að hann myndi missa starfið sitt. Talið er að Oliver Glasner muni taka við af honum.
Pereira rekinn tveimur mínútum fyrir frestinn (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.