Sakaður um að hafa nýtt sér þjónustu vændiskonu undir lögaldri

Bastoni er 27 ára og á 43 landsleiki fyrir Ítalíu.

Mynd: EPA

Bastoni hefur unnið titla með Inter og ítalska landsliðinu.

Ítalski landsliðsmaðurinn Alessandro Bastoni, varnarmaður Inter, er undir rannsókn fyrir að hafa nýtt sér þjónustu vændiskonu undir lögaldri.
Verið er að rannsaka sérstaka VIP þjónustu á næturklúbbum Mílanóborgar sem málsmetandi og háttsettir aðilar og íþróttamenn hafa nýtt sér.
Bastoni er sakaður um að hafa haft samfarir við 17 ára vændiskonu sem fyrirtækið á að hafa útvegað. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru sagðir hafa getað fengið íbúðir þar sem hægt var að eiga kynferðismök við stelpur undir lögaldri.

Salvatore Scuto lögmaður Bastoni segir að skjólstæðingur sinn hafi aldrei greitt fyrir kynlíf og aldrei haft kynmök við einstakling undir lögaldri.
Samkvæmt ítölskum lögum er refsivert að hafa kynferðislegt athæfi gegn greiðslu við einstakling undir 18 ára aldri. Sá sem er dæmdur sekur um að hafa brotið þetta gagnvart 14-18 ára einstaklingi gæti fengið eins til sex ára fangelsi.
Bastoni fékk harða gagnrýni fyrr á árinu frá ítölskum stuðningsmönnum. Hann fékk rautt spjald í umspilinu gegn Bosníu og Hersegóvínu en Ítalía tapaði einvíginu og komst ekki á HM.