Van Dijk, Bruno og Neymar valdir í EKKI lið HM

Af hverju var Neymar tekinn með á HM.

Mynd: EPA

Virgil van Dijk.

Mynd: EPA

Bruno Fernandes í leik með portúgalska landsliðinu.

Mynd: EPA

Florian Wirtz.

Mynd: EPA

Af hverju var Neymar tekinn með á HM.

Mynd: EPA
ESPN setti saman sérstakt vonbrigðalið heimsmeistaramótsins, lið sett saman úr leikmönnum sem ekki stóðust væntingar á nýafstöðnu móti.
Stór nöfn á borð við Joshua Kimmich, Virgil van Dijk, Bruno Fernandes og Neymar voru valdir í þetta vonbrigðalið.
Stór nöfn á borð við Joshua Kimmich, Virgil van Dijk, Bruno Fernandes og Neymar voru valdir í þetta vonbrigðalið.

ESPN
Fernando Muslera tók landsliðshanskana fram að nýju og spilaði á sínu fimmta heimsmeistaramóti með Úrúgvæ. Hann var hrikalega lélegur á mótinu og hefði klárlega átt að sleppa því að snúa aftur í landsliðstreyjuna.
Kimmich var látinn spila í hægri bakverði Þýskalands en ekki í sinni uppáhalds stöðu sem varnartengiliður. Þessi ákvörðun Julian Nagelsmann gekk engan veginn upp og Kimmich var í veseni, eins og allt þýska landsliðið reyndar.
Van Dijk þarf að axla sína ábyrgð á lélegum varnarleik hollenska liðsins og þá vakti athygli að varnarmaðurinn reyndi hafi ekki tekið vítaspyrnu í vítakeppninni gegn Marokkó.
Marc Guehi átti fínt mót fyrir England þar til kom að undanúrslitum. Hann var í miklu veseni gegn Argentínu. Nico O'Riley er einnig valinn í vonbrigðaliðið en honum virtist ekki líða vel í stöðu bakvarðar í enska landsliðsbúningnum.
Þetta var erfitt mót fyrir Úrúgvæ og fyrirliðinn Federico Valverde náði ekki að hafa nægilega jákvæð áhrif. Scott McTominay var frábær fyrir skoska landsliðið í aðdraganda HM en var ósýnilegur á sjálfu stóra sviðinu.
Bruno mistókst að sýna sömu hliðar á HM og hann gerði fyrir Manchester United. Þar gæti haft áhrif að sóknarleikur Portúgals var byggður í kringum Cristiano Ronaldo.
Florian Wirtz átti misjafnt fyrsta tímabil með Liverpool og náði sér heldur ekki strik með Þýskalandi á HM. Christian Pulisic átti að vera leiðtogi bandaríska landsliðsins en virtist hverfa þegar pressan var sem mest.
Af hverju var Neymar valinn í HM hóp Brasilíu? Neymar kom hálfmeiddur inn í mótið og lék á endanum aðeins 37 mínútur. Carlo Ancelotti gerði gríðarleg mistök með því að velja Neymar og hefði frekar átt að taka Joao Pedro.

Virgil van Dijk.

Mynd: EPA

Bruno Fernandes í leik með portúgalska landsliðinu.

Mynd: EPA

Florian Wirtz.

Mynd: EPA


