Fotbolti.net
21.07.26 - 15:23
Elvar Geir Magnússon

Taylor hefur lagt flautuna á hilluna (Staðfest)

Taylor að störfum á landsleik Íslands.

Taylor að störfum á landsleik Íslands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Englendingurinn Anthony Taylor hefur ákveðið að hætta sem dómari eftir tuttugu ára feril sem spannaði 831 leik.

Taylor starfaði sem fangavörður áður en hann varð atvinnudómari. Hann er 47 ára og hans síðasti leikur var 1-0 sigur Spánar gegn Portúgal í 16-liða úrslitum HM þann 6. júlí.

Taylor hefur verið í hópi fremstu dómara Evrópu og dæmt fjölda stórleikja.
„Það hefur verið mikill heiður að dæma á afreksstigi, en álagið er mikið og áreitið stöðugt. Nú er kominn tími til að stíga til hliðar og horfa til næsta kafla á ferlinum,“ segir Taylor sem hefur verið alþjóðadómari hjá FIFA í fjórtán ár.

Hann dæmdi á HM 2022 og 2026 og EM 2020 og 2024. Alls dæmdi hann 163 landsleiki, þar af nokkra hjá íslenska landsliðinu.

Mikið fjaðrafok varð eftir að Taylor dæmdi úrslitaleik Roma og Sevilla í Evrópudeildinni 2023. Taylor varð fyrir aðkasti frá stuðningsmönnum Roma á flugvellinum eftir leik. Einnig fékk hann að heyra það frá Jose Mourinho og portúgalski dómarinn var dæmdur í bann fyrir hegðun sína.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.