Bjóst ekki við að sjá Davíð spila fyrir Víking - „Óvanaleg staða fyrir íslenskt félagslið“

Spilaði þrettán leiki með Keflavík í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lyngby hefur möguleika á að kaupa Davíð.

Mynd: Lyngby

Fæddur árið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Stefánsson gekk í raðir Víkings frá AGF fyrr á árinu.

Mynd: AGF

Snúa aftur eftir krossbandaslit.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Davíð Helgi Aronsson gekk á dögunum til liðs við danska félagið Lyngby á eins árs lánssamningi frá Víkingi.
Þessi 19 ára gamli leikmaður var á láni hjá Keflavík í sumar en Víkingur kallaði hann til baka og hefur lánað hann til danska félagsins. Hann spilaði 13 leiki í Bestu deildinni í sumar og skoraði eitt mark.
Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings um Davíð og skrefið til Lyngby.

TENGT EFNI
Davíð Helgi til Lyngby (Staðfest) - Býst við því að verðmæti hans muni aukast verulega
Óvanaleg staða
„Þetta er óvanaleg staða fyrir íslenskt félagslið að senda leikmann í dönsku úrvalsdeildina. Mér finnst það sýna hvað Víkingur er að gera vel og hvað við erum með sterkan hóp að geta lánað leikmenn dönsku úrvalsdeildina,“ segir Sölvi og heldur áfram.
„Davíð er búinn vinna vel fyrir þessu. Hann stóð sig frábærlega með Keflavík í sumar og á fyllilega skilið að fá þetta tækifæri í dönsku úrvalsdeildinni. Það verður skemmtilegt að fylgjast með honum þar.“
Danska félagið hefur möguleika á að kaupa hann á meðan á láninu stendur. „Það eru einhver ákvæði þarna sem ég ætla ekki að fara nánar út í. Það er eitthvað sem er á milli félagana.“
Bjuggust ekki við að hann myndi spila fyrir Víking
Sölvi spilaði sjálfur lengi vel í dönsku úrvalsdeildinni með FCK, hann var spurður hvort hann hefði getað gefið Davíð góð ráð. „Já, það er nú reyndar svo langt síðan ég spilaði í dönsku úrvalsdeildinni. Hann þarf líka að reka sig á það sjálfur. Þetta er spennandi tími fyrir hann sjálfan,“ segir Sölvi og heldur áfram.
„Davíð hefur tekið réttu skrefin, fékk reynslu með Njarðvík í Lengjudeildinni og greip það. Nú fékk hann nýtt tækifæri í Bestu deildinni og greip það. Nú er Superligaen sem bíður hans og ég hef fulla trú að hann standi sig vel þar.“
„Eins og við bjuggumst við þegar við lánuðum hann til Keflavíkur - við bjuggumst ekki við að hann myndi spila fyrir okkur. Gæðin eru það mikil og hakið það hátt. Það verður virkilega gaman að fylgjast með honum í Lyngby. Vonandi spilar hann sem mest, ég hef fulla trú á því.“
Sölvi Stefánsson að snúa til baka
Annar efnilegur hafsent sem er á mála hjá Víkingi er Sölvi Stefánsson. Hann var sóttur frá AGF fyrr í sumar en hann hefur verið frá í um ár vegna krossbandaslita.
Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, er frændi Sölva og Davíðs í sitthvora ættina. Hann sagði í samtali við Fótbolta.net fyrr í sumar að það væru meiri líkur að hann myndi sjá þá spila saman í landsliðinu en í Víkingi.
Sölvi Geir var spurður út í stöðuna á nafna sínum.
„Hann var í fyrsta skiptið í dag með í kontakt á æfingu. Hann leit hrikalega vel út. Það þarf samt sem áður að fara rólega í hlutina. Hann er að koma til baka eftir krossbandaslit. Við þurfum að passa vel upp á að hann fari ekki of geyst áfram.“
„Þetta er tímabil hjá leikmönnum sem þeir vilja gera meira en þeir mega. Þeir finna kannski ekki fyrir verkjum. Hann þarf að halda áfram að vera þolinmóður og vinna sína vinnu sem hann hefur gert frábærlega. Koma sér í stand, byggja upp styrk í löppunum og koma sér í leikstand,“ sagði Sölvi að lokum.

„Held að það sé ekki langt í að við sjáum hann í A-landsliði Íslands"

TENGT EFNI