Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. ágúst 2021 13:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mikil pressa á Moukoko - Var við það að hætta
Mynd: Getty Images
Youssoufa Moukoko er aðeins 16 ára gamll en hann fékk tækifæri með aðalliði Dortmund daginn eftir 16 ára afmælisdaginn sinn í nóvember í fyrra.

Hann vakti mikla athygli fyrir frammistöðuna sína í unglingaliðum Dortmund þar sem hann skoraði 88 mörk í 141 leik.

Hann segir frá því að hann hafi fundið fyrir gífurlegri pressu, sérstaklega þegar það var talað um aldurinn hans í fjölmiðlum. Hann hafi orðið svo kvíðinn að hann íhugaði að hætta í fótbolta.

„Í upphafi var umfjöllunin mjög stressandi fyrir mig, sérstaklega þegar aldurinn minn var til umræðu. Ég vildi ekki gera mér þetta lengur, ég vildi hætta. ÞJálfarinn minn hjálpaði mér mikið, hann studdi mig. Ég gat gleymt öllu á vellinum." Sagði Moukoko en þarna talar hann um Sebastian Geppert þjálfara u17 Dortmund.
Athugasemdir
banner
banner
banner