Fotbolti.net
01.09.21 - 08:00
Victor Pálsson

Dias tvöfaldaði launin

Dias tvöfaldaði launin
Canon

Mynd: EPA

Ruben Dias, leikmaður Manchester City, skrifaði í gær undir nýjan sex ára samning við félagið.
Dias hefur staðið sig með prýði í hjarta varnarinnar hjá Man City en hann kom til félagsins frá Benfica í fyrra.

John Stones og Dias voru öflugir í miðverðinum hjá Man City síðasta vetur og verða saman á þessu tímabili.

Samkvæmt the Mirror fékk Dias rosalega launahækkun með þessum samningi og tvöfaldaði launin.

Stjórnarmenn Man City voru gríðarlega hrifnir af Portúgalanum sem var á um 80 þúsund pundum á viku.

Portúgalski landsliðsmaðurinn fær nú 160 þúsund pund í vikulaun og ljóst að þar fær hann verðlaun fyrir góða frammistöðu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.