Fotbolti.net
01.11.26 - 09:42
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Amorim: Hlutirnir breytast ekki á einni nóttu

Ruben Amorim

Ruben Amorim

Canon

Mynd: EPA

Ruben Amorim, þjálfari AC Milan, minnir stuðningsmenn félagsins á að hlutirnir breytist ekki á einni nóttu og að það taki tíma að byggja upp lið.
Amorim ræddi við fjölmiðla eftir frábæran 3-1 sigur á Inter í Seríu A á Ítalíu í gær.

Hann var spurður út í ummæli Gerry Cardinale, eiganda félagsins, sem hefur talað opinskátt um möguleikann á að vinna deildina og lagði jafnframt áherslu á mikilvægi þess að vinna grannaslaginn gegn Inter fyrir leikinn.

Amorim hefur sætt gagnrýni síðan hann tók við Milan í sumar, en hann hefur ítrekað minnt á að það taki tíma að byggja upp lið og að slík uppbygging krefjist þolinmæði.

Hann fékk sjálfur ekki mikinn tíma til að snúa genginu við hjá sínu gamla félagi, Manchester United, en hann var ráðinn í nóvember 2024 og látinn taka pokann sinn um 14 mánuðum síðar.

„Að vinna deildina? Það sem Cardinale sagði er auðvitað markmiðið, en það er mikilvægt að vinna svona leiki til að sýna stuðningsmönnunum að hlutirnir breytast ekki á einum eða tveimur mánuðum, og ekki heldur á einu ári. Við verðum að halda okkur á þessari braut.“

„Þú getur ekki bara ráðið nýjan þjálfara, skipt út öllum leikmönnunum og fengið nýjan hóp fyrir hvern einasta stjóra. Það tekur tíma að byggja þetta upp og á þeirri vegferð þurfum við líka töfrandi kvöld eins og það sem við upplifðum í gær.“

„Hlutirnir breytast ekki á einni nóttu, það er einfaldlega ekki hægt. Ég veit ekki hvenær við getum raunverulega stefnt á að vinna deildina, en við verðum að vera hreinskilnir við stuðningsmennina. Fólk er ekki heimskt og stuðningsmennirnir skilja vel hvar við stöndum sem lið og félag í þessari uppbyggingu,“
sagði Amorim.
Amorim: Hlutirnir breytast ekki á einni nóttu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.