Fotbolti.net
31.10.26 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Ég mun aldrei gefast upp"

„Ég mun aldrei gefast upp"
Canon

Mynd: EPA

Pierre Sage, stjóri Crystal Palace, er undir mikilli pressu en liðið er í 18. sæti úrvalsdeildarinnar með sjö stig eftir tap gegn Tottenham í kvöld.

„Það er hörmung fyrir öll félög í úrvalsdeildinni en ég verð að tala um mitt lið," sagði Sage.
„Eina leiðin til að breyta þessu er á vellinum. Þess vegna sagði ég leikmönnum að ég vildi vera fyrstur á völlinn á mánudaginn. Þeir geta treyst mér, ég mun aldrei gefast upp."

„Ég mun setja upp bestu æfinguna á mánudaginn því nú vil ég æfa meira því leikurinn sem ég sá í kvöld er ekki í samræmi við mína sannfæringu og mér líkar ekki þegar við látum andstæðinginn taka of mikið frumkvæðið,“ sagði Sage að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.