01.11.26 - 10:51
Brynjar Ingi Erluson
Piers Morgan lætur Carragher heyra það - „Af hverju í ósköpunum ertu að biðjast afsökunar?“

Jamie Carragher baðst afsökunar á ummælunum

Mynd: EPA

Piers Morgan elskar að hrauna yfir fólk

Mynd: Piers Morgan Uncensored

Jamie Carragher, sérfræðingur hjá Sky Sports, sá sig knúinn til að biðjast afsökunar á ummælum sem hann lét falla um Aston Villa og stuðningsmenn félagsins í spjallþættinum Stick to Football á dögunum.

TENGT EFNI
Carragher: Þetta var bara smá grín
Carragher hjólaði í stuðningsmenn Aston Villa og sagði að þeir þyrftu að átta sig á því hvar í fæðukeðjunni þeir væru staddir.
Hann var þar að útskýra hvers vegna Unai Emery ætti að vera spenntur fyrir möguleikanum á að taka við Manchester United og benti á að United væri mun stærra félag en Aston Villa.
Carragher notaði nokkuð óviðeigandi orðalag, en ummæli hans voru þó langt frá því að vera þess eðlis að þau gæfu tilefni til málshöfðunar.
Engu að síður ákvað Nassef Sawiris, stjórnarformaður Villa, að birta færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann sagðist ætla að höfða mál gegn Carragher vegna óásættanlegra móðgana í garð félagsins og stuðningsmanna þess.
Viðbrögð Sawiris vöktu nokkra furðu í ljósi þess að ummæli Carragher höfðu ekki verið sérstaklega svæsin, þótt þau hefðu vissulega getað farið fyrir brjóstið á stuðningsmönnum Villa.
Carragher sá sig engu að síður knúinn til að birta afsökunarbeiðni á X þar sem hann útskýrði að ummælin hefðu verið sögð í léttu gríni.
Þáttastjórnandinn Piers Morgan botnar hins vegar ekkert í því hvers vegna Carragher hafi beðist afsökunar og gagnrýndi hann harðlega fyrir að hafa látið undan þrýstingnum.
„Af hverju í ósköpunum ertu að biðjast afsökunar? Sýndu smá kjark,“ sagði Morgan á X.

????????Why on earth are you apologising? Grow a pair.
— Piers Morgan (@piersmorgan) October 31, 2026
Aston Villa taking legal action on Jamie Carragher over a normal football conversation is mental ???? https://t.co/FqPFs5Cnb2
— Now Football (@Nowfootball) October 31, 2026

Piers Morgan elskar að hrauna yfir fólk

Mynd: Piers Morgan Uncensored