Fotbolti.net
01.11.26 - 09:12
Brynjar Ingi Erluson

Man Utd spyrst fyrir um Toney - Tveir yfirgefa Liverpool á næsta ári

Ivan Toney til Man Utd?

Ivan Toney til Man Utd?

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Powerade-slúðurpakki dagsins er mættur og það er heldur betur af nógu að taka að þessu sinni.
Manchester United hefur spurst fyrir um Ivan Toney (30), framherja Al Ahli og enska landsliðsins. Félagið hefur hins vegar ekki lengur áhuga á að fá Dominic Calvert-Lewin (29) frá Leeds. (Caught Offside)

Barcelona fylgist náið með stöðu brasilíska vængmannsins Estevao (19) hjá Chelsea og gæti lagt fram tilboð í hann á næsta ári. (Sport)

Spænski miðjumaðurinn Fermin Lopez (23) vill ekki yfirgefa Barcelona þrátt fyrir áhuga Man Utd og Chelsea. (Fabrizio Romano)

Japanski miðjumaðurinn Wataru Endo (33) og ítalski vængmaðurinn Federico Chiesa (29) munu báðir yfirgefa Liverpool á næsta ári. (Echo)

Jean-Philippe Mateta (29), framherji Crystal Palace, mun að öllum líkindum yfirgefa félagið í janúar. (Teamtalk)

Palace er nú að íhuga hvort félagið eigi að selja Mateta í janúarglugganum eða halda honum þar til samningur hans rennur út næsta sumar. (Football Insider)

Arsenal hefur verið í sambandi við Real Madrid vegna brasilíska framherjans Endrick (20), þrátt fyrir að Madrídingar vilji ekki leyfa honum að fara á þessu tímabili. (Teamtalk)

Englandsmeistararnir hafa einnig mikinn áhuga á Eli Junior Kroupi (20), leikmanni Bournemouth, en félagið fylgist sömuleiðis með Can Uzun (20) hjá Eintracht Frankfurt. (Caught Offside)

Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eru meðal þeirra félaga sem hafa áhuga á Kroupi. (Goal)

JJ Gabriel (16), leikmaður Manchester United, færist sífellt nær því að ganga í raðir Real Madrid. (Sport)

Everton mun ekki gera tilraun til að fá Folarin Balogun (25) frá Mónakó í janúar, en framherjinn hafnaði því að ganga til liðs við félagið í sumar. (Football Insider)
Chiesa mun yfirgefa Liverpool á næsta ári

Chiesa mun yfirgefa Liverpool á næsta ári

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.