Fotbolti.net
31.10.26 - 12:15
Brynjar Ingi Erluson

Baráttunni um JJ Gabriel virðist lokið

Baráttunni um JJ Gabriel virðist lokið
Canon

Mynd: Man Utd

Næsti áfangastaður enska ungstirnisins JJ Gabriel virðist vera ráðinn, ef marka má frétt spænska miðilsins Sport.
Þessi 16 ára gamli leikmaður hefur gert Manchester United ljóst að hann vilji yfirgefa félagið.

Hann er talinn einn allra efnilegasti fótboltamaður Englands, en vill reyna fyrir sér annars staðar. Fjögur af stærstu félögum Evrópu hafa því barist um undirskrift hans.

Sport segir að baráttunni virðist nú lokið. Bayern München, Barcelona, Paris Saint-Germain og Real Madrid voru öll í viðræðum um leikmanninn, en Bayern og Barcelona drógu sig snemma úr baráttunni.

Barcelona vildi ekki fara í kaupstríð við hin félögin á meðan Bayern taldi launakröfur hans of háar.

Gabriel er þá ekki sagður sannfærður um verkefnið hjá PSG og því stendur Real Madrid eitt eftir í baráttunni um undirskrift hans.

Talið er að Madrídingar séu tilbúnir að greiða honum tíu milljónir evra fyrir þriggja ára samning.

Gabriel bíður nú eftir því að fá kýpverskt vegabréf svo hann geti samið strax við félög í Evrópu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.