Fotbolti.net
01.11.26 - 09:56
Brynjar Ingi Erluson

Hefur fengið nóg af Martínez og efast um framtíð hans hjá United

Lisandro Martínez sá rautt og fékk á sig víti

Lisandro Martínez sá rautt og fékk á sig víti

Canon

Mynd: EPA

Peter Schmeichel, fyrrum leikmaður Manchester United, kennir Lisandro Martínez alfarið um 2-0 tap liðsins gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær.
„Martínez þarf að svara fyrir sig"
TENGT EFNI

„Martínez þarf að svara fyrir sig"

Martínez varði illa ásamt Harry Maguire í fyrra markinu í 2-0 tapinu og skömmu síðar braut hann af sér innan vítateigs, fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Schmeichel er langt frá því að vera hrifinn af því sem hann hefur séð frá Martínez á tímabilinu.

Daninn tók viðtal við Martínez eftir 2-0 tap United gegn Atlético í Meistaradeildinni fyrir nokkrum vikum, þar sem Argentínumaðurinn gagnrýndi Jason Wilcox, yfirmann fótboltamála hjá félaginu, og sagði United ekki hafa styrkt leikmannahópinn nægilega vel.

Martínez hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og telur Schmeichel að hann sé einfaldlega ekki rétti maðurinn fyrir United.

„Ég kenni Lisandro Martínez alfarið um þetta. Það er skammarlegt hvernig hann spilaði þennan leik.“

„Fyrir tveimur vikum kom hann fram með mjög harða gagnrýni á liðsfélaga sína og félagið. Maður fékk eiginlega á tilfinninguna að hann væri að reyna að koma sér frá félaginu. Samningur hans er að renna út.“

„Ég á ekki til orð yfir því sem hann var að gera í þessum leik. Þú getur ekki varist eins og hann gerði í fyrsta markinu og svo kemur vítaspyrnan. Ég á einfaldlega ekki orð yfir þessari vitleysu. Síðan gengur hann af vellinum og hristir hausinn eins og hann hafi ekkert gert af sér. Þetta er leikmaður sem hefur spilað til úrslita á HM.“

„Það er sláandi að sjá hann verjast með þessum hætti. Morgan Rogers labbaði bara í gegnum vörnina. Martínez leyfði honum einfaldlega að fara framhjá sér og það er ekki nógu gott. Ef þú spilar í ensku úrvalsdeildinni verður þú að verjast betur og ef þú spilar fyrir Man Utd verður þú að gera miklu betur en þetta.“

„Það væri hægt að saka mig um að vera sífellt að gagnrýna hann, en hann er allt of oft í sviðsljósinu þegar United fær á sig mörk vegna þess að hann sinnir ekki varnarvinnunni sinni. Hegðun hans fyrir tveimur vikum og það sem hann gerði í aðdraganda vítaspyrnunnar í þessum leik sýnir að hann er ekki rétti leikmaðurinn fyrir United,“
sagði Schmeichel.
Peter Schmeichel var ekki hrifinn af hegðun Martínez

Peter Schmeichel var ekki hrifinn af hegðun Martínez

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.