Fotbolti.net
31.10.26 - 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Martínez þarf að svara fyrir sig"

„Martínez þarf að svara fyrir sig"
Canon

Mynd: EPA

Lisandro Martínez, varnarmaður Man Utd, fékk að líta rauða spjaldið í 2-0 tapi gegn Chelsea í dag.

Hann fékk sitt annað gula spjald fyrir að keyra í Wesley Fofana inn í teig. Cole Palmer skoraði annað mark Chelsea úr vítinu og tryggði sigurinn.
Danny Murphy hjá BBC hraunaði yfir Martínez eftir leikinn.

„Fyrri hálfleikurinn var mjög góður. Þeir settu leikinn vel upp, fengu færi og litu út eins og lið aftur. Lisandro Martínez þarf að svara fyrir sig, fyrra markið var aðallega honum að kenna. Rauða spjaldið var algjörlega fáránlegt," sagði Murphy.

„Hann mun byðjast afsökunar í klefanum en hann er ekki með rétt hugarfar til að spila. Það er ekki hægt að treysta á hann, hann er byrði."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.