31.10.26 - 15:23
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Chelsea og Man Utd: Tveir fá mikla gagnrýni

Fernandes átti ekki góðan leik

Mynd: EPA

Martínez missti hausinn

Mynd: EPA

Rogers var góður

Mynd: EPA

Fernandes átti ekki góðan leik

Mynd: EPA
Manchester United hefur nú leikið níu leiki í röð án sigurs og leikmenn liðsins fá heldur betur útreið í einkunnagjöf Manchester Evening News eftir tapið gegn Chelsea í dag.

TENGT EFNI
England: Chelsea afgreiddi Man Utd í síðari hálfleik - Martínez brást liðsfélögunum
Man Utd tapaði 2-0 fyrir Chelsea á Stamford Bridge í dag. Liðið spilaði frábæran fótbolta í fyrri hálfleik, en náði ekki að fylgja því eftir í þeim síðari. Þá missti Lisandro Martínez hausinn og gerði Chelsea auðveldara fyrir að sigla sigrinum örugglega heim.
MEN gefur Martínez aðeins tvo í einkunn fyrir frammistöðuna. Hann og Harry Maguire leyfðu Morgan Rogers að dansa framhjá sér í fyrra markinu og síðan braut Martínez klaufalega af sér innan vítateigs, fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt. Chelsea nýtti vítaspyrnuna og tvöfaldaði forystuna.
„Sendingarnar voru hans helsta vopn í byrjun leiks og tengdi hann vel við miðjumennina þegar átti að færa boltann framar, en átti heimskulegt brot, fékk á sig víti og var rekinn af velli. United átti ekki möguleika eftir það,“ segir í frétt MEN.
Hræðileg frammistaða hjá varnarmanninum, en Bruno Fernandes, fyrirliði United, átti heldur ekki góðan dag. Hann sneri aftur í byrjunarliðið eftir að hafa verið settur á bekkinn gegn Bournemouth, en frammistaða hans var ekki upp á marga fiska og fær hann aðeins þrjá í einkunn hjá MEN.
„Það segir alla söguna að Fernandes sé ekki í sínu besta formi á þessu tímabili er tíminn sem hann vill fá á boltann þegar hann fær hann. Hann tapaði boltanum nokkrum sinnum og þrumaði dauðafæri yfir markið eftir frábæra skyndisókn.“
Slakt tímabil Fernandes heldur því áfram, en hann tapaði boltanum ítrekað með klaufalegum hætti og fór auk þess illa með dauðafæri í fyrri hálfleik.
Football London sá um einkunnagjöf Chelsea og þar voru Morgan Rogers og Romeo Lavia efstir með átta í einkunn. Rogers skoraði fyrra markið eftir glæsilegan einleik á meðan Lavia var stórkostlegur á miðsvæðinu.
Einkunnir Man Utd: Lammens (4), Yoro (4), Maguire (5), Martínez (2), Dalot (4), Baleba (4), Santos (4), Fernandes (3), Cunha (4), Diallo (4), Mbeumo (4).
Varamenn: Mainoo (5), Zirkzee (5), Mount (5), Heaven (5).
Einkunnir Chelsea: Penders (7), Acheampong (7), Colwill (6), Fofana (4), Palestra (5), Lavia (8), Caicedo (6), Estevao (7), Palmer (6), Rogers (8), Neto (5).
Varamenn: Chavarria (6).

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +6 | 14 |
| 7 | Ipswich Town | 9 | -3 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | 0 | 12 |
| 9 | Leeds | 9 | +2 | 11 |
| 10 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 11 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 12 | Hull City | 9 | 0 | 10 |
| 13 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 14 | Tottenham | 8 | -2 | 9 |
| 15 | Coventry | 9 | -6 | 9 |
| 16 | Fulham | 8 | -2 | 8 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 8 | -10 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -5 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -11 | 5 |