Fotbolti.net
31.10.26 - 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Flautað af eftir að stuðningsmenn Stefáns og Alfons sprengdu flugelda

Alfons Sampsted

Alfons Sampsted

Canon

Mynd: EPA

Stuðningsmen Go Ahead Eagles voru allt annað en sáttir með stöðuna þegar liðið var 4-0 undir gegn Cambuur. Alfons Sampsted var í byrjunarliði Eagles og Stefán Ingi Sigurðarson kom inn á sem varamaður.
Cambuur var 3-0 yfir í hálfleik en fjórða markið kom á 80. mínútu. Stuttu eftir það kveiktu stuðningsmenn GA Eagles í flugeldum og leikurinn var stöðvaður í 20 mínútur. Nánast um leið og leikurinn var flautaður aftur á héldu menn áfram að sprengja flugelda og dómarinn ákvað að flauta leikinn af.

Willum Þór Willumsson kom inn á undir lokin þegar NEC Nijmegen tapaði 1-0 gegn Heerenveen. NEC er í 13. sæti með 11 stig eftir 11 umferðir en GA Eagles er eins og er í 9. sæti með 14 stig.

Dagur Dan Þórhallsson var í byrjunarliði San Diego FC þegar liðið vann 1-0 sigur á St. Louis City í MLS deildinni. San Diego er í 12. sæti fyrir lokaumferðina og á ekki möguleika á að komast í úrslitakeppnina.

Hilmir Rafn Mikaelsson kom inn á þegar Sigma Olomouc vann 3-0 sigur á Brno í tékknesku deildinni. Sigma er í 2. sæti með 24 stig eftir 13 umferðir. Liðið er sjö stigum á eftir toppliði Slavia Prague.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.