31.10.26 - 15:08
Brynjar Ingi Erluson
Gylfi tekinn við Víkingi (Staðfest)

Mynd: Víkingur R.

Mynd: Víkingur R.

Gylfi Tryggvason hefur verið ráðinn nýr þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi.
Einar Guðnason lét af störfum á dögunum eftir að liðið féll úr Bestu deildinni og niður í Lengjudeildina.
Víkingar voru ekki lengi að finna arftaka hans og hafa nú ráðið Gylfa til næstu tveggja ára.
Gylfi tók við Grindavík/Njarðvík fyrir tveimur árum og kom liðinu upp í Bestu deildina á sínu fyrsta tímabili. Hann náði síðan frábærum árangri með liðið í sumar, en nýliðarnir höfnuðu í fimmta sæti deildarinnar og komust auk þess alla leið í úrslit Mjólkurbikarsins.
„Framundan er spennandi verkefni hjá meistaraflokki kvenna í Víkingi. Félagið hefur skýran metnað til að byggja upp öflugt og samkeppnishæft lið og endurheimta sæti sitt í efstu deild.“
„Ráðning Gylfa markar mikilvægt skref í þeirri vegferð og ríkir mikil ánægja innan knattspyrnudeildarinnar með að hafa tryggt krafta hans til næstu tveggja ára,“ segir í tilkynningu á heimasíðu félagsins.

Besta kvenna - Neðri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Fram | 21 | -15 | 26 |
| 2 | Þór/KA | 21 | -2 | 25 |
| 3 | Valur | 21 | -9 | 24 |
| 4 | Víkingur R. | 21 | -13 | 22 |