01.11.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hörður Snævar og Jói Hreiðars stýra Dalvíkingum

Mynd: Dalvík/Reynir

Mynd: Dalvík/Reynir
Hörður Snævar Jónsson verður áfram þjálfari Dalvíkur/Reynis eftir að hafa stýrt liðinu í 4. sæti 2. deildar í sumar. Óskar Bragason hætti sem aðstoðarþjálfari en Jóhann Hilmar Hreiðaarsson tekur við af honum.
Fréttatilkynning Dalvíkur/Reynis
Í dag voru undirritaðir samningar þess efnis að Hörður Snævar Jónsson heldur áfram sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Dalvík/Reyni og Jóhann Hreiðarsson tekur við sem aðstoðarþjálfari liðsins.
Hörður Snævar hefur stýrt liðinu undanfarin tvö tímabil og heldur nú áfram með nýjan mann sér við hlið. Óskar Bragason, sem hefur verið Herði til aðstoðar síðustu tvö ár, óskaði eftir að láta af störfum að loknu síðasta tímabili. Félagið þakkar Óskari kærlega fyrir vel unnin störf og gott samstarf.
Jóhann Hreiðarsson, eða Jói eins og hann er jafnan kallaður, er öllum hnútum kunnugur í knattspyrnunni í Dalvíkurbyggð. Hann hefur undanfarin þrjú ár verið hluti af þjálfarateymi Þórs/KA og kemur nú aftur heim til Dalvíkur.
Það er mikið ánægjuefni fyrir félagið að fá Jóa aftur til starfa og bjóðum við hann hjartanlega velkominn.
Hörður Snævar hafði þetta að segja við undirritun samningsins:
„Um leið og ég þakka Óskari Bragasyni fyrir frábært samstarf síðustu tvö ár er ég mjög spenntur að fá týnda soninn, Jóhann Hreiðarsson, aftur heim á Dalvík. Við erum spenntir fyrir komandi tímabili og undirbúningurinn er nú að fara af stað. Fram undan er að móta leikmannahópinn og markmiðið er skýrt, að mæta með öflugt lið Dalvíkur/Reynis til leiks næsta vor. Við erum vongóðir um að halda í þann sterka kjarna sem var til staðar á síðustu leiktíð og bæta við nokkrum púslum sem styrkja hópinn enn frekar. Það er mikill hugur í okkur fyrir verkefninu sem fram undan er.“