Fotbolti.net
01.11.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þórir Atlason til Ascoli (Staðfest)

Þórir Atlason til Ascoli (Staðfest)
Canon

Mynd: Ascoli

Blikinn Þórir Erik Atlason (2009) er genginn til liðs við ítalska félagið Ascoli. Þórir er stæðilegur örvfættur miðvörður.

Þetta hefur legið í loftinu en hann hefur verið að bíða eftir leikheimild sem er nú klár. Hann mun spila með U20 liði félagsins.
Þess má geta að aðallið félagsins spilar í ítölsku B-deildinni og er í 3. sæti eftir níu umferðir.

Fótbolti.net sagði frá því í fyrra að Þórir hefði farið á reynslu hjá ítalska félaginu Sassuolo og tékkneska félaginu Slavia Prague.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.