Fotbolti.net
31.10.26 - 21:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Vítaklúður og gjöf á Villa Park

Nicolas Jackson er stjóðandi heitur

Nicolas Jackson er stjóðandi heitur

Canon

Mynd: EPA

Aston Villa 1 - 1 Fulham
0-0 John McGinn ('16 , Misnotað víti)
1-0 Nicolas Jackson ('39 )
1-1 Zion Suzuki ('64 , sjálfsmark)
Aston Villa og Fulham gerðu jafntefli þegar liðin mættust á Villa Park í Birmingham í kvöld.

Aston Villa fékk vítaspyrnu eftir stundafjórðung þegar boltinn strauk höndina á Sander Berge. John McGinn steig á punktinn og skaut í slánna.

Undir lok fyrri hálfleiks komst Nicolas Jackson inn á teig Fulham og fór illa með varnarmenn og kom Villa yfir. Jackson hefur skorað átta mörk í 11 leikjum í öllum keppnum.

Fulham náði að jafna metin þegar Zion Suzuki gerði sig sekan um slæm mistök. Honum tókst ekki að halda boltanum eftir fyrirgjöf og boltinn fór yfir línuna.

Pau Torres fékk úrvalsfæri í uppbótatíma til að tryggja Villa sigurinn en skallaði framhjá markinu. Jafntefli var því niðurstaðan.

Aston Villa er í 9. sæti með 12 stig en Fulham er í 15. sæti með 9 stig eftir níu umferðir.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Leeds9+111
11Hull City9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.