31.10.26 - 17:01
Brynjar Ingi Erluson
Frábært svar hjá lærisveinum Freys - Meistararnir kláruðu tímabilið með sigri

Lærisveinar Freysa hafa unnið þrjá deildarleiki í röð

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Siggi Raggi og félagar fögnuðu deildarmeistaratitlinum með sigri

Mynd: NSÍ Runavík

Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Rosenborg unnu sinn þriðja deildarleik í röð þegar þeir fögnuðu 3-0 útisigri á Fredrikstad í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Það voru mikil vonbrigði hjá Rosenborg eftir að liðið féll úr bikarkeppninni á dögunum, en það svaraði fyrir sig með frábærum hætti og hélt áfram á sigurbraut í deildinni.
Amin Chiakha skoraði tvö mörk og Mads Bomholt eitt fyrir Rosenborg, sem er nú komið með 43 stig og situr í Evrópusæti þegar fimm umferðir eru eftir af deildinni.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson og lærisveinar hans í NSÍ Runavík unnu sannfærandi 3-0 sigur á Toftir í lokaumferð færeysku deildarinnar og fögnuðu meistaratitlinum í leikslok.
Þetta er fyrsti deildarmeistaratitill NSÍ síðan árið 2007.
Alex Freyr Elísson kom inn af bekknum hjá NSÍ, sem lauk tímabilinu með 58 stig.
Benoný Breki Andrésson var í byrjunarliði Stockport County sem vann 2-1 sigur á AFC Wimbledon í ensku C-deildinni. Stockport er í öðru sæti með 26 stig.
Eyþór Martin Björgólfsson kom inn af bekknum í langþráðum 1-0 sigri Motherwell á St. Mirren í skosku úrvalsdeildinni.
Hann kom inn á 73. mínútu og aðeins níu mínútum síðar fengu heimamenn vítaspyrnu sem þeir nýttu til að tryggja sér sigurinn.
Þetta var fyrsti sigur Motherwell síðan í byrjun september, en liðið er í níunda sæti með tólf stig.