Fotbolti.net
02.03.21 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Tammy Abraham gæti yfirgefið Chelsea í sumar

Tammy Abraham gæti yfirgefið Chelsea í sumar
Canon

Mynd: Getty Images

Tammy Abraham gæti verið á förum frá Chelsea í sumar samkvæmt fréttum í enskum fjölmiðlum.

Hinn 23 ára gamli Abraham var ekki í 20 manna leikmannahópi Chelsea í markalausu jafntefli gegn Manchester United um helgina þrátt fyrir að vera heill heilsu.

Abraham hefur átt erfitt uppdráttar síðan Thomas Tuchel tók við Chelsea.
Hinn 23 ára gamli Abraham gæti farið annað í sumar en nokkur félög í ensku úrvalsdeildinni fylgjast vel með gangi mála.

Abraham á tvö ár eftir af samningi sínum hjá Chelsea en félagið gæti verið tilbúið að selja hann í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.