„Við erum mjög ánægðir með hvernig við erum búnir að bregðast við tapinu gegn Haukum í fyrstu umferð. Við vorum vonsviknir með það og við höfum sýnt karakter og liðsanda," sagði Gregg Ryder, þjálfari Þróttar R. eftir 2-0 sigur á Keflavík í 5. umferð Inkasso-deildarinnar í kvöld.
Þróttur vann fjórða deildarleik sinn í röð í kvöld og var fyrsta liðið til að leggja Keflavík að velli í deildinni. Hreinn Ingi Örnólfsson og Oddur Björnsson sáu til þess að skora mörkin.
Gregg var í skýjunum með varnarleikinn í dag.
„Þegar þú ert 1-0 yfir gegn góðu liði þá er það að fara að sækja á okkur og taka áhættur. Mér fannst við ótrúlegir varnarlega, frá markverði og alveg að framherja þá skipulögðum við okkur vel og vorum agaðir," sagði hann ennfremur.
Varnarlína heimamanna var öflug í dag og stóð sína vakt þegar Keflvíkingar sóttu sem mest.
„Þetta var ótrúlegur varnarleikur. Í stórum leikjum þá stíga stóru leikmennirnir upp. Þetta var frábær frammistaða liðsins, vissulega voru nokkrir einstaklingar frábærir en þetta eru ellefu leikmenn plús varamenn. Þetta var frábær frammistaða liðsins."
„Við tökum bara einn leik í einu en það er frábær andi og góður karakter í liðinu."
Viktor Jónsson snéri aftur á völlinn eftir meiðsli en hann var sprækur þær mínútur sem hann fékk.
„Það er frábært að fá Viktor aftur. Allir leikmennirnir okkar leggja sitt af mörkum. Þetta er frábær hópur og skila alltaf sínu," sagði hann í lokin.
Athugasemdir





















