Óskar Smári eftir 7-3 skellinn: „Stærsti skúrkurinn í dag er þjálfarinn“

Óskar Smári Haraldsson tók ábyrgð á 7-3 tapi Stjörnunnar gegn FH og segir liðið þurfa að bregðast rétt við skellinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Smári Haraldsson tók ábyrgð á 7-3 tapi Stjörnunnar gegn FH og segir liðið þurfa að bregðast rétt við skellinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan steinlá 7-3 gegn FH í 13. umferð Bestu deildarinnar í Kaplakrika í kvöld. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var langt frá því sáttur eftir leik og sagði FH hafa verðskuldað sigurinn.
„Tilfinningarnar eru ekki góðar. Verðskuldaður sigur FH og þær áttu klárlega skilið sigurinn.“
„Slæmu kaflarnir voru mjög daprir. Góðu kaflarnir voru allt í lagi en liðið sem vildi vinna leikinn, lagði meira á sig og var á toppnum í dag vann klárlega.“
Stjarnan hafði fyrir leikinn verið það lið sem hafði fengið fæst mörk á sig í deildinni en fékk á sig sjö mörk gegn FH. Óskar sagði leikplanið hafa verið að fara hátt með varnarlínuna en það hafi ekki gengið upp.
„Við fórum hátt með línuna og vissum að FH myndi setja mikið aftur fyrir okkur. Það er ákveðið að kasta ákveðnum teningum og við köstuðum teningunum í dag.“
„Við vorum lengi að bregðast við, vorum langt frá leikmönnum og hjálparvarnirnar ekki nógu góðar.“
„Við skoruðum samt þrjú mörk hérna úti og það er gott. En að fá á sig sjö mörk í einum leik, þegar þær eru búnar að fá á sig ellefu í tólf leikjum, er ekki gott.“
„Ég ætla ekki að skilgreina varnarleik liðsins út frá einum leik. Við erum mjög gott varnarlið en vorum expósaðar alls staðar í dag.“
Hann tók ábyrgð á því hvernig Stjarnan lagði leikinn upp.
„Örugglega mjög röng uppstilling hjá þjálfaranum sem stendur hérna í viðtali og tekur ábyrgð á því.“
Staðan var 4-1 fyrir FH í hálfleik en Stjarnan kom sterk út í seinni hálfleikinn og minnkaði muninn. Óskar var ánægður með viðbrögðin fyrst eftir hlé en sagði fimmta mark FH hafa verið lýsandi fyrir leik Stjörnunnar.
„Ég var ánægður með viðbrögðin. Mér fannst við byrja sterkt í seinni hálfleik og það var gott að skora þetta mark. Það var svona, jæja hvað gerist núna.“
„Svo held ég að fimmta markið hafi verið lýsandi fyrir okkar leik í dag. Miscommunication, ein gerir eitt og önnur hitt. Við vorum bara ekki tengdar í dag.“
„Ég ætla ekki að benda á einn eða neinn. Mér finnst varnarleikur liðsins í sumar hafa verið frábær í öllu liðinu.“
„Það er ekki okkar að benda á einn og gera einhvern blóraböggul í dag. Stærsti blóraböggullinn og stærsti skúrkurinn í dag er kannski bara þjálfarinn, því ég ákveð að spila þennan leik eins og við spiluðum hann.“
„Við þurfum að líta inn á við, fara yfir leikinn á vídeófundi á morgun og fara yfir þessi mörk. Hvað þurfum við að gera betur, hvernig stöndum við og hvað gerum við?“
„Það verður engu sópað undir teppið. Stundum er allt í lagi að fá skell. Það snýst kannski ekki alveg um að fá skellina heldur hvernig við ætlum að bregðast við þeim.“
Stjarnan mætir Grindavík/Njarðvík í næsta leik og Óskar segir liðið þurfa að svara fyrir frammistöðuna.
„Við eigum verkefni eftir viku á móti Grindavík/Njarðvík og við þurfum að gera upp fyrir þetta. Að tapa 7-3 og fá á sig sjö mörk í sama leik er bara alls ekki í lagi.“
„Ég held að allir leikmenn viti að þær þurfa að gera betur og það á líka við um okkur starfsliðið. Við berum ábyrgð og ég ber ábyrgð á tapinu og mun alltaf gera það.“
Það voru þó jákvæðir punktar hjá Stjörnunni, meðal annars að Murielle Tiernan komst á blað og Sandra kom aftur inn á völlinn.
„Það er gott að fá Murielle í gang. Hún er að vinna sig í stand og mér fannst innkoman hennar í dag góð.“
„Sandra var líka að spila sínar fyrstu mínútur núna og spilaði 30 mínútur í bakverðinum í dag. Það er langt síðan hún spilaði þannig að ég horfi jákvætt á að þessar tvær séu að koma til baka því þær styrkja liðið umtalsvert að mínu mati.“
Aðspurður út í mögulegar breytingar hjá Stjörnunni í félagaskiptaglugganum hafði Óskar lítið að segja.
„Ég held þú verðir að spyrja starfsmenn og stjórn Stjörnunnar. Ég veit það ekki.“
Sjáðu allt viðtalið í spilaranum hér að ofan.




