Fotbolti.net
21.07.26 - 22:07
Snæbjört Pálsdóttir

Ánægður Guðni - „Hún mun taka yfir, það er ekki spurning"

Auglýsing
Guðni Eiríksson var að vonum ánægður með framlag FH-liðsins eftir 7-3 sigur gegn Stjörnunni

Guðni Eiríksson var að vonum ánægður með framlag FH-liðsins eftir 7-3 sigur gegn Stjörnunni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

FH vann ótrúlegan 7-3 sigur á Stjörnunni í 13. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. FH-liðið hefur verið á miklu flugi undanfarið og hefur nú skorað 20 mörk í síðustu þremur leikjum sínum.

Lestu um leikinn: FH 7 - 3 Stjarnan

Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var ánægður með framlag síns liðs eftir leik.

„Bara góðar eins og rauninni hefur verið í síðustu leikjum hjá okkur. Flott framlag hjá FH-liðinu.“

FH lagði grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik þar sem liðið fór illa með Stjörnuna.

„Algjör grunnur í fyrri hálfleik þar sem við hlupum yfir andstæðinginn. 4-1 og það hefði svo sannarlega getað verið mun stærra en það.“

„Við höfum svo sannarlega getað skorað fleiri mörk en maður kvartar ekki ef liðið skorar sjö mörk.“

Stjarnan hafði fengið fæst mörk á sig í deildinni fyrir leikinn en FH skoraði sjö gegn Garðbæingum. Guðni segir FH fyrst og fremst horfa á sitt eigið lið.

„Við höldum bara í okkar. Þegar við erum að undirbúa okkur fyrir leik þá erum við bara að pæla í okkur. Við erum lítið sem ekkert að pæla í andstæðingnum og öll vinnan fer í að fókusera á hvað við erum að gera á vellinum.“

Hann segir FH-liðið erfitt viðureignar þegar allt smellur.

„Það er bara erfitt að eiga við okkur. Við ógnum alls staðar, vinstra megin, hægra megin, fyrir miðju og þar á milli. Það er erfitt að stoppa okkur og það eru alltaf færi í FH-liðinu.“

Aðspurður hvort eitthvað lið í deildinni geti stöðvað FH eins og liðið er að spila núna sagði Guðni það fyrst og fremst vera undir FH sjálfu komið.

„Það er bara undir okkur komið. Ef við erum on it þá er erfitt að eiga við FH-liðið en ef við ætlum að hleypa hlutum upp í kæruleysi þá getur hvaða lið sem er unnið FH-liðið.“

„Meðan fókusinn er réttur og liðið er rétt stillt og allar tilbúnar í þetta, þá er erfitt að eiga við okkur.“

FH skoraði þrjú mörk í seinni hálfleik með leikmönnum sem komu inn af varamannabekknum. Guðni segir breiddina skipta gríðarlega miklu máli.

„Það skiptir alveg gríðarlega miklu máli. Núna erum við með stóran og mikinn bekk og við róterum. Við höfum gert það frá fyrsta leik.“

„Allir vita og þekkja sín hlutverk og það gerir það að verkum að við getum spilað þennan kraftmikla fótbolta sem við erum að gera. Við hægjum ekkert á.“

Hrönn Haraldsdóttir kom inn af bekknum og skoraði tvö mörk. 

„Frábær. Hún er stelpa sem við horfum mikið til og hennar hlutverk í FH-liðinu stækkar með hverjum leik. Hún mun taka yfir, það er ekki spurning.“

Félagaskiptaglugginn er að opna en Guðni segir FH ekki vera að leita sérstaklega að styrkingum.

„Það er ekkert í kortunum. Við erum ekki að pæla í því. Við erum með mikla breidd þannig að það er engin ástæða til þess að bæta einhverju við það.“

„Það er bara Berglind sem er að fara í skóla og hún er náttúrulega farin núna. Það er eini leikmaðurinn sem við vitum að er að kveðja FH.“

Að lokum sagði Guðni mikilvægt að njóta augnabliksins þegar hlutirnir ganga vel.

„Við ætlum að njóta þess að hafa unnið þennan leik í dag og fögnum því. Svo er það bara æfingasvæðið á morgun og áfram gakk.“

„Maður má ekki gleyma því að njóta þegar vel gengur. Ég er búinn að vera það lengi í þessu og maður hefur upplifað allan skalann. Nú gengur vel og þá má ekki gleyma að njóta og lifa í núinu.“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.