Rúnar: Guðmundur skorar oft þegar hann kemur inná
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Rúnar Páll þjálfari Stjörnunnar gat glaðst í leikslok gegn Val í kvöld eftir sigurmark í blálokin.
"Þetta var mjög sætt. Guðmundur Steinn er alltaf lunkinn og skorar oft þegar hann kemur inná."

Leikurinn kemur Stjörnunni aftur í efri hlutann eftir tvö töp og var fyrsti sigur Stjörnunnar á Val síðan 2012.
"Þetta var mjög mikilvægur sigur fyrir okkur. Við vorum ekkert að spá í það fyrir leik hvað umfjöllunin var mikil um Val eða það að við hefðum ekki unnið þá hér síðan 2012, við vildum bara vinna leikinn."
Framundan er landsleikjahlé og tvær vikur í næsta leik, breytir þjálfarinn uppleggi?
"Við munum alveg gefa mönnum hvíldir en við höldum okkar rútínu, ég held að við séum að fara að spila við FH næst og við verðum tilbúnir þegar sá leikur kemur."
Nánar er rætt við Rúnar í viðtalinu sem fylgir.