„Það er mjög mikilvægur leikur framundan sem leggst mjög vel í mig," sagði landsliðskonan Thelma Karen Pálmadóttir við Fótbolta.net í dag.
Framundan er leikur á móti Úkraínu á föstudaginn sem er mikilvægur fyrir liðið í undankeppni HM.
Framundan er leikur á móti Úkraínu á föstudaginn sem er mikilvægur fyrir liðið í undankeppni HM.
Thelma Karen á góðar minningar gegn Úkraínu en fyrsti byrjunarliðsleikur hennar með landsliðinu kom gegn Úkraínu á Laugardalsvelli fyrr í þessari undankeppni.
„Það var skemmtilegur leikur. Við höfðum yfirhöndina og það er mikilvægt að við gerum það aftur núna,“ sagði hún.
„Við þurfum að vera klárar. Þær munu klárlega gera allt sem þær geta til að vinna þennan leik.“
Er þetta orðið venjulegt?
Thelma Karen varð 18 ára fyrir tveimur mánuðum síðan en er farin að festa sig í sessi í íslenska landsliðshópnum. Er þetta bara orðið venjulegt?
„Ég myndi ekki segja það. Það er alltaf heiður að vera valin í landsliðið. Að spila og æfa með þessum stelpum er algjör heiður og ég mun seint taka þessu sem einhverju venjulegu.“
„Það er kannski aðeins minna stress en í fyrstu ferðinni og svoleiðis, sem er fínt. En það er samt alltaf spenningur og stress.“
Hún segir stelpurnar hafa tekið sér afar vel.
„Þetta er yndislegt lið og þær eru allar frábærar. Þær hafa klárlega tekið mjög vel á móti mér. Það er nýliðavígsla á morgun og ég þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði. Það verður bara gaman. Ég, Arna og María ætlum að gera þetta saman.“
























