Fotbolti.net
24.11.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rifjar upp ummæli Freys um Cardiff vegna Swansea orðrómsins

Rifjar upp ummæli Freys um Cardiff vegna Swansea orðrómsins
Canon

Mynd: Rosenborg

WalesOnline fjallaði um það í gær að Freyr Alexandersson er líklegasti kandídatinn í að taka við sem stjóri Swansea í ensku Championship deildinni.
Freysi: Myndi gjarnan vilja þjálfa Cardiff
TENGT EFNI

Freysi: Myndi gjarnan vilja þjálfa Cardiff

Freysi, eins og hann er oftast kallaður, hefur verið að gera stórkostlega hluti með Rosenborg í Noregi. Hann tók við liðinu í 15. sæti og hefur rifið það upp í 4. sæti. Þegar þrjár umferðir eru eftir getur liðið hafnað í 3. sæti í besta falli en 3. - 4. sæti gefur þátttökurétt í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Glen Williams, blaðamaður hjá WalesOnline, rifjaði upp áhugaverð ummæli Freysa í viðtali við Fótbolta.net árið 2024 þar sem hann sagðist gjarnan vilja stýra Cardiff sem er einnig í Championship deildinni.

„Vincent Tan og Ken Choo sjá um bæði félögin. Það er ekkert leyndarmál, og þegar ég talaði við Kortrijk á sínum tíma þá átti ég líka samtal við þá sem stjórna Cardiff um að ég ætla mér að þjálfa á Englandi. Ég ætla vera stjóri í Championship eða Premier League. Það eru stórir draumar og ég geri mér grein fyrir því. Það væri frábært ef að það væri Cardiff, ég myndi gjarnan vilja þjálfa Cardiff á einhverjum tímapunkti," sagði Freysi.

Vitor Matos yfirgaf Swansea fyrr í þessum mánuði og tók við franska liðinu Strasbourg. Swansea er í 8. sæti með 27 stig eftir 16 umferðir en þess má geta að Cardiff er í 15. sæti með 18 stig.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough16+1332
2Stoke City16+732
3Wolves16+931
4Birmingham16+1329
5West Brom16+829
6Southampton16+1627
7QPR16+727
8Swansea16+427
9Sheffield Utd16+625
10West Ham16+1424
11Norwich16+924
12Portsmouth16+223
13Blackburn16-122
14Wrexham16-121
15Cardiff City16-118
16Millwall16-518
17Bolton16-918
18Bristol City16-1018
19Charlton Athletic16-1117
20Lincoln City16-1215
21Watford16-1415
22Burnley16-911
23Derby County16-1810
24Preston NE16-179
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.