Fotbolti.net
24.11.26 - 13:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fyrirliði Heimis til Man Utd?

Heimir og Nathan Collins.

Heimir og Nathan Collins.

Canon

Mynd: EPA

Manchester United mun samkvæmt breskum fjölmiðlum ekki hafa úr miklu að moða í janúarglugganum, minna en 50 milljónir punda verða í boði fyrir Mauricio Pochettino til að styrkja leikmannahópinn.

Búist er við því að argentínski stjórinn muni einungis reyna fá inn tvo leikmenn í glugganum og annar gæti komið á láni. United horfir í miðvarðarstöðuna, vinstri bakvörðinn og framherjastöðuna.

Nathan Collins er sagður ofarlega á blaði en hann er miðvörður Brentford og írska landsliðsins. Hann ber fyrirliðabandið bæði hjá Brentford og hjá Heimi Hallgrímssyni í landsliðinu.

Collins er 25 ára og kom frá Wolves sumarið 2023, en áður hafði hann verið hjá Stoke og Burnley.
Miðverðirnir Calvin Bassey hjá Fuham og Jarrad Branthwaite hjá Everton eru einnig orðaðir við United.

Aðaláherslan er á framherjastöðuna þar sem Benjamin Sesko hefur verið meiðslagjarn og Joshua Zirkzee er ekki nægilega góður til að vera byrjunarliðsmaður hjá United.

Ivan Toney hefur verið orðaður við United og þeir Folarin Balugon og Dominic Calvert-Lewin hafa sömuleiðis verið orðaðir við Old Trafford. United hefur þá lauslega verið orðað við Igor Matanovic hjá Freiburg og Victor Osimhen hjá Galatasaray.
Gæti Osimhen farið til United?

Gæti Osimhen farið til United?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.