Fotbolti.net
24.11.26 - 18:00
Brynjar Ingi Erluson

Lykilmaður Leedsara við það að framlengja

Tanaka verður áfram hjá Leeds

Tanaka verður áfram hjá Leeds

Canon

Mynd: EPA

Japanski miðjumaðurinn Ao Tanaka er við það að skrifa undir nýjan samning við enska úrvalsdeildarfélagið Leeds United.
Tanaka er 28 ára gamall og gekk til liðs við Leeds frá Fortuna Düsseldorf árið 2024. Hann átti stóran þátt í því að koma liðinu aftur upp í úrvalsdeildina og hefur haldið áfram að vera mikilvægur hlekkur í liðinu.

Hann hefur verið í stóru hlutverki undir stjórn Daniel Farke á tímabilinu og byrjað níu af ellefu deildarleikjum Leeds. Tölfræðin talar sínu máli, en liðið hefur aðeins tapað tíu af þeim 66 leikjum sem Tanaka hefur byrjað síðan hann kom til félagsins.

Núverandi samningur hans rennur út eftir næstu leiktíð, en samkvæmt Sky Sports hefur hann náð samkomulagi við Leeds um framlengingu til ársins 2029.

Þetta eru frábær tíðindi fyrir stuðningsmenn Leeds, en liðið situr í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 17 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.