Fotbolti.net
24.11.26 - 13:12
Kári Snorrason

Færri komast að en vilja á leik Íslands og Portúgals

Með sigri í einvíginu tryggir Ísland sér sæti á HM í Brasilíu sem fer fram næsta sumar.

Með sigri í einvíginu tryggir Ísland sér sæti á HM í Brasilíu sem fer fram næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kvennalandslið
Mikill áhugi er á seinni umspilsleik kvennalandsliða Íslands og Portúgals um sæti á HM sem fer fram í byrjun desember.

KSÍ og bakhjarlar bjóða á leikinn og ljóst er að færri komast að en vilja þegar íslenska liðið freistar þess að komast á HM í fyrsta sinn.
Bjóða á umspilsleikinn gegn Portúgal - Vilja fylla Laugardalsvöll
TENGT EFNI

Bjóða á umspilsleikinn gegn Portúgal - Vilja fylla Laugardalsvöll

Í tilkynningu KSÍ er þakkað fyrir mikinn áhuga og tekið fram að dregið verði úr hópi þeirra sem óskað hafa eftir miðum. Fyrsta úthlutun hefst í dag.

Þeir sem fá miða hafa ákveðinn frest til að sækja þá en ósóttir miðar verða boðnir öðrum.

Frétt af heimasíðu KSÍ:
Viðtökurnar við miðaskráningu fyrir leik Íslands og Portúgals hafa verið frábærar og ljóst er að áhuginn á leiknum er langt umfram sætaframboð á Laugardalsvelli.

KSÍ vill þakka kærlega fyrir þennan mikla áhuga og þann stuðning sem íslenska landsliðið finnur fyrir fyrir þennan mikilvæga leik.

Vegna mikillar eftirspurnar er jafnframt ljóst að ekki verður hægt að verða við öllum miðabeiðnum.

Við úthlutun þarf KSÍ að tryggja miða til ákveðinna hópa, meðal annars aðildarfélaga, bakhjarla KSÍ, leikmanna Íslands og gestaliðsins. Að því loknu verður dregið úr hópi þeirra sem hafa óskað eftir miðum.

Fyrsta úthlutun hefst í dag og þeir sem fá miða fá ákveðinn tíma til að sækja þá. Ósóttir miðar verða síðan boðnir öðrum, þannig að áfram getur skapast tækifæri fyrir þá sem fá ekki miða í fyrstu umferð.

Markmiðið er einfalt: að allir þeir miðar sem fara út skili sér í fólki á Laugardalsvelli þegar Ísland mætir Portúgal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.