Fotbolti.net
24.11.26 - 15:10
Elvar Geir Magnússon

Bjarki tekinn af velli í fyrri hálfleik eftir brottvísun

Dortmund fékk Bjarka í sumar.

Dortmund fékk Bjarka í sumar.

Canon

Mynd: Dortmund

Bjarki Hrafn Garðarsson var í byrjunarliði U19 liðs Borussia Dortmund sem tapaði 3-2 fyrir Arsenal í Evrópukeppni unglingaliða.

Um miðjan fyrri hálfleik var Bjarki tekinn af velli en markvörðurinn Aaron Held hafði þá fengið rautt spjald fyrir að ræna upplögðu marktækifæri. Bjarka var fórnað svo varamarkvörðurinn gæti komið inn.

Staðan var markalaus en tíu gegn ellefu skoraði Dortmund tvívegis og komst tveimur mörkum yfir. En Arsenal náði á endanum að snúa dæminu við og vann 3-2 með sigurmarki Josh Ogunnaike á 83. mínútu.
Bjarki með 14 mörk í 12 leikjum fyrir unglingalið Dortmund
TENGT EFNI

Bjarki með 14 mörk í 12 leikjum fyrir unglingalið Dortmund

Dortmund fékk hinn sextán ára gamla Bjarka, sem er stór og stæðilegur sóknarmaður, frá Stjörnunni í sumar. Hann hefur verið iðinn við kolann í gula búningnum fyrir unglingaliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.