24.11.26 - 16:32
Kári Snorrason
Nenni í Aftureldingu (Staðfest)

Mynd: Afturelding

Mynd: Afturelding
Nenni Þór Guðmundsson hefur gengið í raðir Aftureldingar frá KFA. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
Nenni er fæddur 2009 og hefur hann verið í æfingahópum U16 og var í U17 hóp á síðasta ári. Þrátt fyrir ungan aldur á hann 58 meistaraflokksleiki að baki og skorað í þeim níu mörk.

TENGT EFNI
Efnilegur leikmaður skoraði fyrir Aftureldingu - „Mjög bjartsýnir á að hann semji við okkur"
Hann hefur æft með Aftureldingu að undanförnu og spilað æfingaleiki með liðinu. Hann skoraði m.a. gegn Fjölni nýverið.
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, var spurður út í Nenna í viðtali við Fótbolta.net á dögunum.
„Nenni er efnilegur leikmaður sem hefur æft með okkur undanfarnar vikur og staðið sig mjög vel. Hann hefur komið vel inn í hópinn og smellur vel inn í það sem við erum að gera. Við erum mjög bjartsýnir á að hann semji við okkur og haldi áfram að vaxa sem leikmaður í Mosfellsbænum," sagði Maggi.