Fotbolti.net
24.11.26 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kroon frá KA til Rosengård (Staðfest)

Rangstaða dæmd í fyrstu umferð gegn Stjörnunni.

Rangstaða dæmd í fyrstu umferð gegn Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Svíinn Samuel Kroon fór frá KA eftir að tímabilið á Íslandi kláraðist og hann er búinn að semja við FC Rosengård 1917 í Svíþjóð.

Kroon er 29 ára framsækinn leikmaður sem hefur spilað 34 leiki í sænsku úrvalsdeildinni og 101 leik í B-deildinni. Samningur hans gildir til 2029.

Rosengård er í þriðju efstu deild í Svíþjóð, endaði þar í 6. sæti á nýliðnu tímabili.
Kroon samdi við KA í mars og leysti bæði vinstri bakvarðarstöðuna og hægri kantinn. Hann kom við sögu í tólf leikjum og lagði upp tvö mörk í Bestu deildinni. Hann spilaði einnig í báðum bikarleikjum liðsins.

Kroon var talsvert frá vegna meiðsla sem komu í veg fyrir að hann spilaði meira.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.